Réttur - 01.06.1947, Qupperneq 43
HÉTTUR
115
skipta þjóðinni upp, flokka hana þannig að þeir, sem ekki
séu með Ameríkumönnum, séu taldir með Pwússum! Sam-
svarandi flokkadrættir voru einnig á Sturlungaöld kærir
þeim útlendingum, sem þá seildust hér til valda. Og nú
er þessi geðbrjálunarstarfsemi háð af engu minna offorsi
af hálfu manna eins og þess, er ritar alltaf upp aftur og
aftur sömu ósannindin á 2. síðu Morgunblaðsins, en víga-
ferlin á Sturlungaöld voru háð af verstu óhappamönn-
um aldarinnar þá.
Áróður eins og sá, sem Morgunblaðið og önnur nefnd
blöð reka, er raunveruleg stríðsæsing, þar sem fá á meiri-
hluta Islendinga til fylgis við yfirgangsstefnu amerísku
auðdrottnanna.* Ætla má þó að það verði lítt betra fyrir
* Stundum reyna hin amerísku leppblöð að gefa í skyn að þriðja
heimsstyrjöld yrði varnarstríð Bandaríkjaþjóðarinnar. Ekkert er
fjær lagi. Það er síður en svo um hagsmuni Bandaríkjaþjóðarinnar
að ræða, ef auðdrottnarnir yfir henni leggja til styrjaldar, til þess
að brjóta heiminn undir sig. Þeir gera þetta af ótta við að efnahags-
skipulag það, sem þeir hafa þvingað upp á amerísku þjóðina: ein-
ræði auðhringanna, sýni sig í friðsamlegri samkeppni við hagkerfi
sósíalismans ófært um að efla í sífellu framfarir og lífskjör mann-
kynsins. Staðreyndirnar um eflingu iðnaðarframleiðslunnar í Sovét-
ríkjunum og Bandaríkjunum hræða hina amerísku auðdrottna:
Bandaríkin tólffölduðu iðnaðarframleiðslu sína á 80 árum, Sovét-
ríkin gerðu það á 13 árum (frá 1928 til 1910). Hlutdeild beggja þess-
ara stórvelda í iðnaðarframleiðslu heimsins óx frá 1913 til 1937, með-
an hlutdeild annarra stórvelda minnkaði, en eftirfarandi tafla sýnir
hver munurinn er:
1913 1937
Bandaríkin ' 38,2% 41,2%
Þýzkaland 15,2 11,6
England ....... 12,1 9,3
Frakkland 6,6 5,0
Rússland 2,6 13,7