Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 50
122
RÉTTUR
herferð þeirra gegn pólitísku og efnahagslegu frelsi Is-
lendinga. Þar sem hún hefur ein getað ráðið, svo sem um
löggæzlu, hefur hún getað til fulls sýnt viljann í verkinu.
En á flestum öðrum sviðum þjóðlífsins á hún undir högg
að sækja. Sjálfstæðismeðvitund Islendinga segir þeim enn
sem fyrr að eigi dugi að víkja.
V.
ísland sem amerísk herstöð leiðir yfir
oss þá hættu að íslendingum
verði útrýmt
Tilgangur ameríska auðvaldsins með því að ná þeim
tökum á Islandi, sem það nú er að reyna að tryggja sér
gegn vilja íslenzku þjóðarinnar, er ekki fyrst og fremst
sá að arðræna þjóðina, þó hin amerísku auðfélög, sem
þegar eru farin að feta hér í fótspor Hörmangaranna,
taki nú þegar að stela af kaupi íslenzkra verkamanna. og
brjóta taxta þeirra, — þá mun það vafalaust fyrst og
fremst vera vegna þess að þetta er nú einu sinni þeirra
vani. Það er 'heldur ekki fyrst og fremst tilgangurinn að
gera Islendinga að amerísku málaliði, þó ætla mætti slíkt
eftir þeim fítonsanda, sem áróðurinn gegn Sovétríkjunum
er rekinn hér með undir andlegri forustu manntegundar-
innar Ivars Guðmundssonar.
Tilgangurinn er að tryggja ísland sem ameríska her-
stöð. Öll sú barátta, sem afturhaldið heyr á íslandi nú,
öll hin móðursjúka æsingastarfsemi gegn Sovétríkjunum
og Sósíalistaflokknum, miðar að þessu eina marki: að
brjála þjóðina svo að hún í einskonar geðveikiskasti, —
álíka og því, sem Hitler tókst að koma þýzku þjóðinni í