Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 57
UÉTTUR
129
arinnar á úrslitastund í hendur slíkra flokka, sem íhalds-
ins, Alþýðuflokksins og Framsóknar.
Það, sem er undirrót hættunnar hér heima, hættunnar
á því að þjóðin bregðist sjálfri sér, er mest á reynir, er
auðurinn, sem hér hefur nú skapast og safnast á svo
fárra hendur, þrátt fyrir all árangursríka baráttu verka-
lýðshreyfingarinnar fyrir að dreifa honum út til fólksins,
að nú eiga 200 einstaklingar og félög í Reykjavík um 500
milljónir króna í skuldlausum eignum.
Slík auðsöfnun á einstakra manna hendur eyðileggur
hverja þjóð siðferðislega og andlega, ef hún hlýðir boð-
um þessara herra auðsins. Og þeir kalla nú daglega á
hana í víðlesnasta blaði landsins, Morgunblaðinu, hamast
við að reyna að breyta manngildi fslendinga í peninga-
gildi, sem forríkir höfðingjar íslands leggi inn með sér
hjá auðdrottnum Wall Street sem inngangseyri í alþjóð-
legt samsæri allra auðmanna heimsins gegn mannkyn-
inu.
Ritþý þessara nýríku höfðingja hafa nú hafið „herferð
gegn kommúnismanum“ að hætti þýzka auðvaldsins 1932.
Með þeirri herferð í Þýzkalandi var menningarlíf þýzku
þjóðarinnar drepið og sjálf þjóðin gerð svo ringluð að
hún gat ekki reist rönd við dýpstu niðurlægingu sjálfrar
sín. Þessi þý reyna að telja hinni gáfuðu íslenzku þjóð trú
um að Bandaríkin séu að koma upp lénsríkjum undir sinni
herstjórn í Grikklandi, Tyrklandi og Iran til að „verja
sig,“ — en myndu vafalaust telja það firru og hættu fyrir
heimsfriðinn, ef Sovétríkin gerðu slíka samninga við
Kanada, Mexico og Panama, — og það réttilega! En það
er vissulega gáfnapróf á íslenzku þjóðina, hvort hún læt-
ur blinda sig með svona heimskulegum amerískum áróðri.
f forheimskunar- og spillingar-herferð sinni hafa hin
amerísku þý þegar áorkað því, að til eru menn í Reykja-
vík, sem tala með til'hlökkun um næsta stríð, því þá verði