Réttur - 01.06.1947, Qupperneq 81
RÉT T U R
153
lagið? Samkvæmt 15. gr. frv. á að færa niður verðlag
á ýmsum vörutegundum þannig, að greidd vinnulaun,
sem reiknað er með í verðlagi þessara vara lækki að
sama skapi, sem verkalaun lækka samkv. lagaboði.
Hvað mundi þetta nema miklu?
Forsætisráðherra hefur það eftir einhverjum, að þetta
mundi nema ca. 3%, svo að launaskerðingin mundi ekki
verða nema 5%. Nú er varlegt að treysta þessum manni,
þar sem hann hefur verið staðinn að því að gefa þing-
heimi vísvitandi rangar upplýsingar um opinberar
,,skýrslur“, sem hann hefur sjálfur í höndum. Sann-
leikurinn mun vera sá, að ef gert er ráð fyrir, að öll
lækkun vinnulauna hafi að fullu áhrif til lækkunar á
verðlag, mun hagstofan áætla, að þetta geti numið %
af vísitölulækkuninni, í þessu tilfelli nokkuð innanvið 3%.
Gerum nú ráð fvrir að þetta yrði, að þetta kraftaverk
skeði. Hver yrði útkoman þá?
Samkvæmt 7. kafla skal leggja 3V2% veltuskatt á
megin'hluta alls þess sem keypt er og selt í landinu,
undanskilið er aðeins landbúnaðarafurðir, fiskur og vör-
ur til útgerðar. Samkvæmt þessu hækkar meginhluti
þeirra vara, sem ganga inn í vísitöluna um 3y2% og ekki
nóg með það, heldur líka allar aðrar vörur, sem ekki
ganga inn í vísitöluna. En nú fer um það bil helming-
ur meðal-verkamannslauna einmitt til kaupa á slíkum
vörum og gæðum.
Verðlæltkun landbúnaðarafurða
nálgast núll
Ff allt færi nákvæmleo-a eftir kenninp-imni, mund’ be+^a
nokkurnveginn vega salt að því er vísitöluna snertir. En
það fer mjög fjarri því, að svo verði í rauninni.
í 1. lagi gildir hin fræðilega eða réttara sagt ímynd-
aða verðlækkun, sem fram á að fara, ekki um allar þær
11