Réttur - 01.06.1947, Side 88
160
R ÉTTUR
fé? Því er fljótsvarað. Það rennur í vasa atvinnurek-
anda. Það rennur ekki til þeirra, sem látið er í veðri
vaka að eigi að hjálpa, ekki til bátaútvegsmanna. Það
rennur til þeirra atvinnurekenda, sen hafa mest af
beinum launþegum í þjónustu sinni. Það rennur að lang-
mestu leyti í vasa hinna auðugustu í landinu. Á móti
þessu kemur svo eignaaukaskattur, er engar upplýs-
ingar hafa verið gefnar um, hvað nemi miklu. Ef hann
nemur 10 millj. fá eignamenn að meðaltali 40 millj. út úr
frumvarpinu nettó. (Frá þessu dregst að vísu nokkur
upphæð, sem ríkið hagnast um).
Yfirstéttin á sér húsbóndaliolla þjóna
Það þarf því meira en lítil brjóstheilindi til þess, að
halda því fram, að hér sé verið að skipta byrðunum rétt-
látlega og að „þeir sem mest mega sín beri þyngstu byrð-
arnar“ eins og forsætisráðherrann sagði. Sannleikurinn
er sá, að hér er verið að gefa hinum ríku tugi milljóna
á kostnað launastéttanna, ræna tugum milljóna úr vasa
hinna fátæku og millistéttanna, og stinga þeim í vasa
hinna ríku. Því verður ekki neitað, að yfirstéttin á sér
húsbóndaholla þjóna, þar sem stjórnin er, en um hygg-
indin gegnir kannski nokkuð öðru máli. Af því hefur
nú þegar fengizt nokkur reynsla, og þó er nú lögð enn
meiri prófraun á hyggindi þeirra. Víst var það í þjón-
ustu lítillar yfirstéttarklíku, sem árásin var gerð á kjör
almennings með tollahækkuninni s. 1. vetur. Það var í
þjónustu þessarar klíku, sem aðalatvinnuvegirnir voru
stöðvaðir í nærri þvi mánuð til þess að þröngva kosti
verkamanna. Það var aðeins vegna þess að vitibornir
menn tóku fram fyrir hendur ríkisstjórnarinnar, að síld-
arvertíðin var ekki stöðvuð alveg. En verkalýðurinn
sigraði og tókst að halda kjörum sínum óskertum. En
það var tugmilljóna tap fyrir þjóðina. Og það var mikið