Réttur - 01.06.1947, Qupperneq 91
RÉTT U R
163
sjómenn ekki una neinni óvissu um fiskverðið, einkum
þegar þess er gætt, að afurðasalan er í höndum manna,
sem 'hafa notað hvert tækifæri, þegar hingað hafa komið
erlendir verzlunarerindrekar til þess að lýsa því yfir,
að verðið á afurðum íslendinga sé alltof hátt.
X>,jóðartekjurnar 50 þús. kr. á 5 manna
f jölskyldu að meðaltali
Samkv. síðustu framtölum voru þjóðartekjur fslend-
inga í kringum 11 hundruð milljónir og raunar meiri,
ef reiknað væri með hinum raunverulegu tekjum. Það
mundi ekki fjarri sanni, að ef þjóðartekjur Islendinga
væri skipt jafnt niður, kæmi allt að 50 þúsund kr. á
hverja 5 manna fjölskyldu, en mikill hluti þessa óhemju
auðs er í höndum örfárra manna.
Samkvæmt framtölum 1946 er eignaskipting í Reykja-
vík þannig: 200 ríkustu einstaklingarnir og hlutafélög-
in eiga 103 milljónir í skuldlausum eignum, miðað við
fasteignamat og nafnverð á verðbréfum. Það er ekki
minna en 500 millj. kr. miðað við raunverulegt verð-
mæti, eða yfir y2 milljón miðað við fasteignamat en
2y2 milljón miðað við söluverð nú á hvern aðila. Eign
allra skattþegna var á sama tíma 402 milljónir miðað við
fasteignamat og nafnverð.
Og svo kemur ríkisst’órnin og ber það blákalt fram
fyrir þjóðina, að allt sé að fara í kalda kol og að atvinnu-
rekendur séu að sligast undir byrðunum. Og hún ætlar
að ræna 50 milljónum frá þeim, sem rétt hafa til hnífs
skeiðar og stinga í vasa hinna, sem eiga 2y2 milljón að
meðaltali hver í skuldlausum eignum. Það eru vissulega
engin takmörk fyrir mannlegu blygðunarleysi. Og þeg-
ar litið er sérstaklega til Alþýðuflokksins, sem hefur
forystuna í þessari ríkisstjórn: Hvilíkt hyldýpi mann-