Réttur - 01.06.1947, Page 94
166
R ÉTTUR
herrum: Kaupið verður að lækka. Það er bezt fyrir
launastéttirnar sjálfar, annars er hrun framundan.
Ránið frá útveginum
Ef einhver atvinnuvegur eða grein atvinnuvegar á við
örðugleika að stríða, þá er vitaskuld hið eina, sem vit
er í að jafna metin á kostnað þess reksturs, sem rekinn
er með miklum gróða. Nú fer fjarri því, að sjávarútveg-
urinn þurfi á hjálp að halda sem heild. Á honum byggist
sá óhemju auður, sem safnazt hefur fyrir í landinu. Og
ef bátaútvegurinn fengi að njóta ávaxtanna af því, sem
hann aflar, þá þyrfti hann vissulega ekki að kvarta.
Það er einmitt þessi leið, sem Sósíalistaflokkurinn hefur
bent á. Landsbankinn hefur grætt 14,2 millj. á s. 1. ári.
Hvaðan er þetta fé tekið? Af sjávarútveginum. Gróði
heildsalastéttarinnar er nú alveg vafalaust yfir 50 millj-
ónir kr. á ári. Hvaðan er þetta fé tekið? Það er tekið af
sjávarútveginum. Það er tekið af verzlun með þann gjald-
eyri, sem sjávarútvegurinn aflar. Ríkisstjórnin tekur um
80 millj. með tollum. Hvaðan er það fé tekið? Að lang-
mestu leyti af afla sjávarútvegsins. Ef bátaútvegnum
væri skilað þó ekki væri nema litlum hluta þess fjár,
mundi vissulega ekki vera áhættusamt að stunda útgerð.
Úrræði Sósíalistaflokksins
Nú er það svo, eins og ég hef sýnt fram á, að launa-
rán ríkisstjórnarinnar er engin hjálp fyrir bátaútveg-
inn, síður en svo. En Sósíalistaflokkurinn hefur lagt
fram frumvarp, sem mundi tryggja góða afkomu fyrir
bátaútveginn með því að létta af honum nokkru af þeim
byrðum, sem á honum hvíla. Sósíalistaflokkurinn leggur
til að vextir verði lækkaðir, sem ekki er aðeins eðlileg,
heldur sjálfsögð ráðstöfun, eins og nú standa sakir. Bank-