Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 95
R É T T U R
167
arnir munu nú þvert á móti hafa 'haft vaxtahækkun í
undirbúningi og munu ætla að hækka innlánsvextina af
því að viðurkennt er, að bankarnir hafa haft óeðlilegan
gróða. Hvaða vit er þá í því að lækka ekki útlánsvexti
til útgerðarinnar, þegar hrópað er upp um erfiðleika
hennar. Þá leggur Sósíalistaflokkurinn til að vátrygg-
ingagjöld bátaútvegsins séu lækkuð að mun og að út-
gerðarvörur, beita og viðgerðarkostnaður séu lækkuð
mjög verulega og verðinu komið í eðlilegt horf. Með
þessum ráðstöfunum mætti lækka tilkostnað meðalfiski-
báts um 50—60 þúsund króna.
Þá leggur Sósíalistaflokkurinn til í frumvarpi sínu að
vöruverð og vísitala séu raunverulega lækkuð, þannig
að hægt sé að halda hinni raunverulegu vísitölu stöð-
ugri í kringum 300. Þetta er hægt að gera með því að
afnema tolla af nauðsynjavörum og breyta verzlunar-
fyrirkomulaginu í ódýrara horf. Ef þessir hlutir væru
framkvæmdir mundi bátaútvegurinn og hlutamenn búa
við betri kjör en sl. ár og njóta raunverulega lægra
verðlags. Hitt gagnar sjávarútveginum ekki nokkurn
skapaðan hlut, þótt því sé logið í lögum, að vísitalan sé
300, sízt þegar verðlag fer í raun og veru hækkandi á
sama tíma.
Framtíð lýðræðisins og sjálfstæðis
þjóðarinnar er í hættu
Að lokum vildi ég segja þetta: Islenzkir kjósendur
'hafa nú fengið að sjá, hvert sá þingmeirihluti stefnir,
sem þeir trúðu fyrir umboði sínu 1946. Fyrstu alvarlegu
aðvörunina fengu þeir þegar herstöðvasamningurinn var
gerður og afturhaldinu tókst að rjúfa samstarfið um
nýsköpunina. Nú hafa þeir fengið aðra alvarlegu aðvör-
unina. Það er ekki aðeins um efnahagslega afkomu ís-
lenzks almennings að tefla, að það takist að hrinda