Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 97
RÉTT U R
169
EFTIKMÁLI
Framkvæmd laganna og áhrif á
afkomu almennings
Nú höfum við fengið að sm fyrstu framkvæmdina á
„dýrtíðarlögum" ríkisstjórnarinnar. Og vissulega er hún
með allt öðrum hætti en til var ætlazt. Hún er í algerðu
ósamræmi og sumpart í beinni mótsögn við lögin.
Verðlagsákvæði í ósamræmi við lögin
Samkvæmt lövunum átti meginhluti þeirra vara, sem
ganga inn í vísitöluna að undanskildum landafurðum og
fiski að hækka um 3Vo% þar sem á þær lagðist sölu-
skattur, sem bætast skvldi við verð vörunnar og greið-
ast af nevtendum samkvæmt skvlausum fyrirmælum
laganna. Nú hefur ríkisstiórnin fyrirskipað að verzl-
unarfvrirtækin skuli gre’ða þenna skatt, þvert á móti
því, sem lögin ætlast til. Þetta gildir um allar vörubirgð-
ir beínlínis osr um nviar vörur óbeinlínis, þar sem settar
eru nýjar verðlagsreglur með lækkaðri álagningu, sem
æ^iazt er til að vegi á móti söluskattinum. Hvort svo
verður getur revnalan ein skorið úr um.
Samkvæmt lögunum átti verðlækkun landbúnaðaraf-
urða að vera hverfandi lítil, aðeins sem svarar vinnu-
launum, sem fólgin eru í sex vísitölustigum, því verð
landbúnaðarafurða er miðað við vísitöluna 306. — En
verðlækkun beirra er töluvert meiri, einkum kiötverðs-
ins og er ekki hið minnsta samræmi á verðlækkun t. d.
kiöts og miólkurafurða. Er þetta í fullkomnu ósamræmi
v’ð lögin, og óskilianlegt hvaða reglum hefur verið fylgt.
Er ekki sjáanlegt að stjórnin hafi hér nokkra lagaheim-