Réttur - 01.06.1947, Page 99
RÉT T U R
171
taxta lækkar kaup hans um 2040 kr., nettótap 1690
krónur. Ef hann er fagmaður á hærri taxta lækkar kaup-
ið um 2475 kr., nettótap 2125 kr. á ári. Ef tveir menn
eru vinnandi á slíku heimili verður nettótapið 3044 krnn-
ur, ef þeir vinna fyrir lægsta Dagsbrúnartaxta, en 4250
krónur, ef þeir eru iðnaðarmenn. Allt er þetta miðað við
að þeir vinni dagvinnu eingöngu. (Hér er ekki unnt að
reikna með öðru neyzlumagni en vísitölumagni eins og
Hagstofan gerir í öllum sínum útreikningum, enda þr-1
neyzlumagn og hlutfall þess milli liinna ýmsu vörutey
unda hafi breyzt. Hins vegar er ekki reiknað með neinni
eftirvinnu svo útkoman er síst ríkisstjórninni í óhag).
Svona myndi dæmið líta út EF ek.vi xæmu aðrar hækk-
anir til og verðlagið héldist óbreytt til frambúðar og all-
ar vörur, sem lækka vísitöluna væru fáanlegar. En það
er mjög fjarri því að svo sé.
Kartöflur og smjör á vísitöluverði eru oft ófáanlegar
vörur. En verð á kartöflum vegur einna mest í vísitölu-
útreikningnum.
Sumar lækkanirnar eru aðeins til að sýnast. T. d. er
leyft að hækka ýmsar tegundir fiskmetis svo útkoman
af verðlækkun þeirri, sem auglýst hefur verið á fiski
getur orðið núll. Mikil verðhækkun hefur orðið á hveiti
og kartöflumjöli í janúar, sem hækkar útgjöld hverr-
ar f jölskyldu að mun, svo útgjaldalækkun sú, sem reikn-
að er með í dæminu hér að framan og miðuð er við verð-
lag 1. jan. er þegar orðin úrelt.
Hvað sem fullyrðingum ríkisstjórnarinnar líður um
það, að hin nýju verðlagsákvæði vegi á móti söluskatt-
inum, er víst að neytendur munu ekki sleppa við að greiða
ríflegan hluta hans. Kaupfélögin verða sérstaklega hart
úti, eins og í pottinn er búið. Fyrirtæki eiga sjálf að
innheimta söluskattinn af neytendum, og greiða hann
af þeirri veltu sem þau gefa upp til skatts. Þetta er auk-
in freisting til að telja fram miklu minni veltu en raun