Réttur - 01.01.1950, Blaðsíða 7
MAO TSE-TUNG
leiðfogi kommúnista í Kína
%
(Frásögn um fyrri hluta ævi hans).
Á seinni hluta nítjándu aldar bjó fátækur bóndi að nafni Mao
Jenséng í þorpinu Shao Shan í Húnanfylki í Kína. Afkoma hans
var slæm eins og flestra smábænda þar, og að lokum neyddist
hann til að ganga í herinn vegna skulda. Hann var mörg ár í her-
þjónustu, en sneri síðan heim í þorpið sitt og heppnaðist með mik-
illi sparsemi, ærinni vinnu og smávægilegri kaupsýslu að öngla
saman svo miklu fé að hann gat endurkeypt jörðina, sem hann
hafði orðið að láta upp í skuldir.
Þarna fæddist, árið 1893, sonur hans Mao Tse-tung, sem seinna
átti eftir að verða heimsfrægur maður — leiðtogi kommúnista
í Kína.
Þegar Mao var sex ára gamall var hann látinn fara að hjálpa til
við sveitastörfin. Faðir hans hélt áfram afurðasölu sinni og efn-
aðist allvel á henni, en fjölskyldan hans varð að vinna baki brotnu
og spara.
Átta ára gamall fór Mao í barnaskóla og var þar til þrettán ára
aldurs, þó varð hann að vinna á morgnana fyrir skólatíma og á
kvöldin. Kennari hans var strangur og barði nemendur sína all-
óvægilega. Mao var hneigður fyrir námið og fékk þegar mikinn
áhuga á Konfúsíusi og öðrum klassíkurum kínverskra bókmennta,
en hann undi því illa að vera barinn — oft fyrir litlar sakir. Því
var það, að er hann var tíu ára tók hann þá ákvörðun að strjúka úr
skólanum. Heim þorði hann ekki að fara af ótta við það að verða
barinn af föður sínum, en lagði af stað í áttina til næstu borgar.
Eftir þriggja daga ferðalag, matarlaus og villtur, fannst hann og
var færður heim. Þá kom í ljós að hann hafði sífellt gengið í hring
og aldrei komizt nema um þrjár enskar mílur frá þorpinu. En strok