Réttur - 01.01.1950, Blaðsíða 77
RETTUR
77
Stéttardómar.
25. marz féll undirréttardómur í máli því sem ríkisstjórnin lét
höfða gegn nokkrum mönnum, sem þátt tóku í mótmælunum
gegn landráðunum 30. marz s.l. ár. 20 menn voru dæmdir í
samtals 116 mánaða fangelsi. Stefán Ögmundsson, sem talaði af
hálfu fúlltrúaráðs verkalýðsfélaganna á mótmælafundinum fékk
18 mánaða fangelsi og var sviptur kosningarétti og kjörgengi. 3
menn voru dæmdir í 12 mánaða fangelsi og einnig sviftir kosn-
ingarétti og kjörgengi. 3 menn fengu 6 mánaða fangelsi, 5
fjögra mánaða og 8 þriggja mánaða. Öllum dómunum var áfrýjað
til hæstaréttar.
Ekki þarf að taka það fram, að dómar þessir eiga ekkert skvlt
við lög og rétt. Þeir eru hefndarráðstöfun sekra manna, og felldir
samkvæmt fyrirskipun dómsmálaráðherrans, Bjarna Benedikts-
sonar, af hlýðnum verkfærum. Forsendurnar eru í flestum tilfell-
um vitnisburðir keyptra ljúgvitna, en framburður annarra vitna
ekki tekinn gildur. Stefán Ögmundsson er dæmdur fyrir að skýra
mannfjöldanum frá svörum stjórnmálaflokkanna við kröfu mót-
mælafundarins um þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðrir eru dæmdir fyrir
að hafa gert tilraun til að verjast óðum hvítliðaskríl, sem sigað var
á fólkið, eða lögreglumönnum, sem misst höfðu alla stjórn á skapi
sínu. Sumir þessara manna höfðu þó ekki einu sinni gert tilraun
til að verjast og sannanlega ekki unnið annað til saka en að vera
misþyrmt af hvítliðunum eða lögreglunni.
Allur málatilbúnaðurinn bregður upp táknrænni mynd af
stjórnarfari því og réttaröryggi, sem við íslendingar eigum við
að búa um miðja 20. öldina. Valdhafarnir, eða nánar til tekið
Sjálfstæðisflokkurinn, sem hafði yfirstjórn þessara mála á hendi,
réðu til sín fjölda manna upp á kaup, er skyldu hafa það verkefni
að dreifa sér meðal mannfjöldans, festa sér vel í minni þau andlit,
sem þeir þekktu, og kæra svo þessa kunningja sína og vinnufé-
laga fyrir lögreglunni, svo hægt væri að dæma þá til fangelsisvist-