Réttur - 01.01.1950, Blaðsíða 78
78
RÉTTUR
ar og svipta þá mannréttindum. Á framburði þessarar þokkalegu
manntegundar eru forsendur dómanna reistar.
Síðan dómurinn féll hafa mótmæli frá verkalýðsfélögum og
öðrum samtökum streymt að úr öllum áttum. Fulltrúaráð verka-
lýðsfélaganna í Reykjavík og Dagsbrún héldu mótmælafund, þar
sem kominn var saman meiri mannfjöldi, en nokkurt samkomu-
hús í Reykjavík hefði getað rúmað. Á fundinum var kosin nefnd
til verndar réttaröryggi íslendinga. Meðal þeirra sem mótmælt
hafa er aðalfundur Þjóðvarnarfélagsins.
1. maí.
Það tókst að koma í veg fyrir sundrungu verkalýðsins 1. maí
að þessu sinni. Verkalýður Reykjavíkur gekk í sameinaðri fylk-
ingu um götur bæjarins .Það varð glæsileg kröfuganga, svo að
engin hefur verið stærri áður 1. maí. Hátíðahöldin annarsstaðar
á landinu voru yfirleitt sameiginleg.
Hinn róttæki meirihluti fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í
Reykjavík komst að samkomulagi við fulltrúa minnihlutans, og
þar með við stjórn Alþýðusambandsins, um fyrirkomulag og inn-
tak dagsins. í ávarpi dagsins og kröfuspjöldum þeim, sem borin
voru í göngunni var aðaláherzlan lögð á einingu verkalýðsins í
baráttunni gegn gengislækkuninni og fyrir kröfum verkalýðsráð-
stefnunnar. Afturbaldsstefna undangenginna ára, marshallstefn-
an, var fordæmd. Þess var krafizt að undanbragðalaust yrði hafizt
handa um öflun nýrra og öruggra markaða, og að Keflavíkursamn-
ingnum yrði sagt upp, en íslendingar einir tækju við rekstri hans.
Stéttardómunum vegna atburðanna 30. marz var mótmælt á
borða, sem borinn var í göngunni og í ræðum manna.
Forustumenn Alþýðuflokksins afhjúþuðu sinn innra mann og
komu upp um það hlutskipti, sem þeim er ætlað í átökum þeim
sem framundan eru, betur en nokkru sinni fyrr síðan þeir tóku
að leika stjórnarandstöðu. Allt til síðustu stundar voru þeir önn-