Réttur - 01.01.1950, Blaðsíða 55
HÉTTUR
55
ins, og þar með bann við þeim framförum atvinnulífsins,
sem ekki eru þessum drottnum að skapi.
3. Einokunarklæmar halda þjóðinni fastri undir svipu-
liöggum Marshallkrcppunnar.
Kreppan er nú dunin yfir fsland. Hún hefur orðið lýðum
Ijós eftir áramótin 1949—1950, þegar fara átti að gera nýja
verzlunarsamninga og í ljós kom að Marshallþjóðirnar,
þær viðskiptaþjóðir, sem fhaldið, Framsókn og Alþýðu-
flokkurinn hafði f jötrað oss við, vildu svo að segja ekkert
af afurðum okkar kaupa. Þessi kreppa hafði verið að búa
um sig tvö undanfarin ár og skall nú yfir ísland með allri
sinni ógn. Sósíalistar höfðu varað við henni í kosningunum
24. október 1949, en Marshallflokkarnir varast að minnast
á að nokkuð slíkt væri í vændum.
Nú lokaðist að heita má ísfiskmarkaðurinn í Þýzkalandi,
sá markaður, sem 1948 var notaður til að gylla Marshall-
okið með. fsfiskmarkaðurinn í Englandi minnkaði svo mik-
ið að 20 togarar voru farnir á saltfiskveiðar í apríl, þótt
sýnt þætti að offramleiðsla, miðað við markað auðvalds-
landanna, yrði á saltfiski. Freðfiskmarkaðurinn hrundi svo
ægilega, að England og Holland, sem keypt höfðu 20 þús.
tonn af um 30 þúsund tonna heildarútflutningi 1949, kaupa
nú lítið sem ekkert, Þýzkaland alls ekkert og hin Marshall-
löndin minkandi magn.
Sovétríkin höfðu 1946 keypt 15 þúsund tonn af freðfiski
frá Islandi eða helming ársframleiðslu vorrar. En nú 'höfðu
Bandaríkin bannað leppstjórn sinni á íslandi slíka stór-
verzlun við Rússa. Auðkóngar Ameríku álíta það pólitískt
hættulegt fyrir sig, ef ísland getur átt mikil viðskipti við
.. Sovétrikin. Það geti ef til vill gert Island efnahagslega
óháðara og því erfiðara fyrir amerísku auðdrottnana að.
undiroka það. Þessvegna líta þessir einræðisherrar auðsins