Réttur - 01.01.1950, Blaðsíða 17
RÉTTUR
17
þeir sem eftir lifðu, um 20 þús., náð áfangastaðnum, og Mao Tse-
tung orti um þessa löngu og hættulegu ferð langt og merkilegt
söguljóð.
Skal nú farið fljótt yfir sögu Mao Tse-tungs, ekki vegna þess
að hún verði síður viðburðarík eftir þetta, heldur vegna þess að
hún verður varla greind frá hinni stórkostlegu baráttu kommún-
istanna í Kína eftir þetta.og yrði of langt að rekja það mál hér,
enda mún sú saga verða ítarlega skráð af öðrum.
Kona Maos var drepin eftir skipun eins af hershöfðingjum
Kuomintang, en hann kvæntist aftur Ho Tze-nien, sem var
kennslukona og starfaði að skipulagningu innan kommúnista-
flokksins.
Enskur rithöfundur, Edgar Snow, sem kynntist Mao á ferðalagi
sínu um ráðstjórnarhéröðin, lýsir honum þannig, að hann sé yfir-
lætislaus maður, dálítið bóndalegur og hirðulítill um útlit sitt,
gamansamur og feikna minnugur. Hann er góður rithöfundur og
ræðumaður, hefur undravert vinnuþol og er álitinn mikill stjórn-
málamaður og slyngur hershöfðingi, sumir Japanar töldu hann
mesta hershöfðingja Kínverja í síðustu styrjöld.
Hd. St.
ft
2