Réttur


Réttur - 01.01.1950, Page 20

Réttur - 01.01.1950, Page 20
20 RÉTTUR Síðan liðu árin. Þau ultu áfrani hægt og drynjandi gegnum tilveruna, því að þetta voru stríðsár. Sigga Ó1 sjálf upp sitt barn. Það var stúlka, yndislegt engilbarn með móbrún augu eins og pabbi hennar. Það hafði margháttaða erfiðleika í för með sér að hafa ungbarn, sem þurfti að annast. En þegar hún hallaði þessum ávexti ástar- innar upp að brjósti sínu, yfirskyggði móðurástin allt annað. Sjálf átti hún þefta stúlkubarn og hún ætlaði þá einnig að fórna sjálfri sér fyrir það. Hún varð að hætta í verksmiðjunni, þar sem hún hafði unnið, og fara í vist. Það var orðin mikil eftirspurn eftir stúlkum til hús- starfa, jafnvel þótt þær hefðu börn með sér. Húsbændur herínar voru eldri hjón, maðurinn stundaði trésmíðar, en konan rak saumastofu. Hún var kirkjurækin kona og siðavönd. Leyndi sér ekki, að hún leit á Siggu sem stórlega siðferðisbrákaða manneskju og lét þess talsvert gæta í daglegri umgengni. Ef til vill hefur hún ekki talið hana dýpra sokkna en svo, að vera mætti að henni tæk- ist að bæta' ráð sitt og iðrast sinnar hrapalegu yfirsjónar — ekki sízt ef hún hún umgengist grandvart fólk og tileinkaði sér þenki- máta þess. Enda gerði frúin heiðarlegar tilraunir til að innræta Siggu rétt hugarfar. Siggu þótti hún ekki skemmtileg húsmóðir. F.n hún var nægi- lega hyggin til þess að gera sitt bezta til að umbera hana, ekki sízt af því að hún fann, að þrátt fyrir allt vildi kerlingin henni vel. Aft- ur á móti henti það aldrei, að hún liti eftir telpunni fyrir hana svo mikið sem eina kvöldstund. í eitt skipti hafði hún boðizt til að gæta hennar, ef Sigga vildi fara í kirkju. En þá hafði Sigga ekki fundið lijá sér neina hvöt til kirkjugöngu, svo að þetta tilboð kom ekki að gagni. Húsbóndinn var afskiptalítill. Þegar hann vár ekki að vinna, sat hann með pípu sína og las blöðin eða spilaði bridge við kunn- ingjana. Þetta var mesta regluheimili. Og þegar allt kom til alls leið Siggú þar eins vel og hægt var að búast við um stúlku, sem hafði

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.