Réttur


Réttur - 01.01.1950, Síða 23

Réttur - 01.01.1950, Síða 23
RÉTTUR 23 anir um væntanlega viðburði kvöldsins. Hún fann það á sér, að það myndi eitthvað gerast í kvöld .... Líklega ætti hún að taka honum? Þó að hún elskaði hann ekki beinlínis, þá var hún samt pínulítið skotin í honum, og hún gat vel hugsað sér að búa með honum. Samt var einhver kvíði í henni — hún yrði að gæta þess að hrapa ekki að neinu og hún yrði að kynnast honum betur. Hann hafði stundum reynt að vera vingjarnlegur við Dísu litlu — enda þótt hún hefði óljósan grun um, að honum væri það ekki eðlilegt. Skyldi hann verða góður við hana sem stjúpfaðir? Áreiðanlega var það betra með tilliti til framtíðar Dísu litlu, að hún ætti mann og heimili, bara ef hann yrði þeim góður. Og hlaut hann ekki að verða það? En hann yrði þá að biðja hennar skýrt og skorinort. Það hafði hann nú eiginlega ekki gert ennþá, þrátt fyrir ástleitni sína. Hún var langt frá því að vera ánægð yfir að skilja Dísu litlu eftir hjá mágkonu sinni að þessu sinni. Það var staddur þarna gestur og það var verið að fara með vín. Að vísu var ekkert þeirra drukkið, en samt leyndi sér ekki á þeim hjónunum, að þau voru eitthvað hreif aL.víni. En þegar Gunnar kom, þýddi ekki að vera með neinar vomur. Hún blátt áfram komst ekki undan því að fara með honum, hvað sem hún sagði. Það hafði verið fjörugt á dansleiknum. Hljómsveitin var fyrir- tak og hafði haft lag á að halda lífi og fjöri í fólkinu. En Sigga gleymdi sér samt ekki. Þegar klukkan var tólf, byrjaði hún að ympra á því við Gunnar að fara heim. Að vísu hafði hún ætlað sér að vera til hálf eitt, en hún vildi hafa vaðið fyrir neðan sig, þar eð hún gerði ráð fyrir, að hann myndi hafa á móti því, að hún færi svo snemma. En henni til undrunar hreyfði Gunnar engum mótmælum. „Alveg sjálfsagt, að ég fylgi þér heim. Þú gerir það svo fyrir mig að koma aðeins við hjá mér á heimleiðinni og þiggja ein-

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.