Réttur


Réttur - 01.01.1950, Blaðsíða 29

Réttur - 01.01.1950, Blaðsíða 29
RÉTTUR 29 til þess að færa henni rafmagnsofn. Hún rétti úr sér, eftir að hún hafði komið ofninum í samband — gömul og hörkuleg, gráhærð kona. ,,Það er ekki nóg að eiga barn, Sigga litla,“ sagði hún. ,,Það þarf að hugsa vel um það.“ Þessi fáu orð höfðu meiri áhrif á móðurina en þótt haldin hefði verið yfir lienni löng ásökunarræða. Þessum orðum var engu hægt að svara. Þau voru sönn, þó að móðirin vissi, að hún hafði eftir beztu getu reynt að hugsa vel um barnið sitt, og þetta hafði ekki beinlínis verið henni að kenna. Og samt — hún átti aldrei að trúa öðrum fyrir barninu sínu. — Það var heldur ekki það, sem skipti máli, hvers sökin var, heldur hitt, að aumingja litla stúlkan hennar hafði ofkælzt alvarlega og var ef til vill t bráðri lífshættu. Og tárin streymdu niður farðaðar kinnar hennar, án þess að hún fengi við það ráðið. Þá fór gamla konan út úr herberginu og hristi höfuðið, um leið og hún lét aftur hurðina á eftir sér. Stundum er eins og dauðinn sé sameiningarmáttur, sem jafnvel sé þess umkominn að sameina hinar ólíkustu mannverur og gera þær eitthvað örlítið hæfari til að skilja hver aðra. En þessi dauði, sem hafði hrifið til sín hina þriggja ára gömlu, brúneygu, hálfbrezku stúlku, hann var víst ekki þannig. Það hlaut að vera grimmur og gersamlega miskunnarlaus dauði. Eða hvernig hefði hann annars getað fengið af sér að læsa klóm sínum í þetta saklausa og fallega engilbarn, sem áreiðanlega átti ekki sök- ótt við neinn. Þrjú stutt ár — síðan þjáningar — dauði. Hvað eftir annað hafði hún reynt að rísa upp í rúminu sínu og litið á móður sína þessum saklausu brúnu augum. Og það skein út úr þeim hreinskilnisleg ásökun, eins og hún héldi, að það væri henni að kenna, hve illa sér liði. Þau tillit smugu gegnum móðurhjartað eins og hnífsstungur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.