Réttur


Réttur - 01.01.1950, Síða 35

Réttur - 01.01.1950, Síða 35
R ÉTTUR 35 Atvinnuleysið er eins og svipa yfir hverjum einstökum launþega og verkalýðssamtökunum, svipa, sem afturhaldið notar til þess að lækka launin eða halda þeim niðri, — pískur á þá einstaklinga sem verða atvinnulausir, til þess að reyna að beygja þá fyrir valdhöfunum í krafti neyðar- innar. Þegar þessi svipa hverfur úr höndum valdhafanna, stendur verkalýðurinn sterkari. Hann verður meira jafn- oki atvinnurekendanna á vinnumarkaðnum og fær þannig aðstöðu til að hindra launalækkanir eða jafnvel bæta kjör sín. Full atvinna skapar því verkalýðssamtökunum sterka aðstöðu. Þetta var og er Sósíalistaflokknum ljóst. Hann vann þvi, einnig út frá því sjónarmiði að því að tryggja fulla atvinnu eftir stríðið, þver öfugt við það, sem aftur- haldsblöðin í heimskulegum áróðri sínum halda fram um að hann vilji koma á atvinnuleysi og eymd. Afturhaldinu var það þegar ljóst á stríðsárunum að at- vinnuleysi var því mjög nauðsynlegt fyrirbrigði, til þess að geta beitt kaupkúgun við verkalýðinn. Eysteinn Jónsson 'hefur upplýst í þingræðu að reynt var að semja við hern- aðaryfirvöldin um mátulegt atvinnuleysi, en það mistókst. Afturhaldið vonaðist eftir því að strax eftir stríðið kæmi hið „gamla, góða“ ástand aftur, að verkamenn þyrftu að koma til þess og biðja það um vinnu eins og náðarbrauð. Þessvegna boðaði afturhaldið að verðlækkun myndi skella á erlendis strax og stríðinu lyki og þessvegna ætti strax að lækka kaupið hér heima. (Sjá ,,Rétt“ 1948, bls. 192— 198 nánar um þetta). Og ekki vantaði stuðning kaupkúg- aranna erlendu við slíkar kröfur. Þær komu eins og pant- aðar kröfurnar frá Bretastjóm í árslok 1944 um að lækka yrði verð á íslenzkum fiski. Það þarf engum blöðum um það að fletta að afturhaldsstjóm hefði tafarlaust látið undan þeim kröfum. En þá var Sósíalistaflokkurinn kominn í ríkisstjórn á Islandi, — nýsköpunarstjórnina — og það var sagt nei við öllum verðlækkunarkröfum brezka. auð- valdsins og næstu tvö ár var knúið fram síhækkandi verð

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.