Réttur


Réttur - 01.01.1950, Síða 66

Réttur - 01.01.1950, Síða 66
66 RÉTTUR nemann, og stríðsœsingamenn beggja megin Atlanzbafsins sáu ofsjónir. A vatnaskilum Siberiu og Aral-sléttunnar voru sovét- vísindin að sýna hvernig megi nota kjarnorkuna mannkyninu til þurftar og blessunar en ekki til fjöldamorða. EYÐIMERKUR BREYTAST í BLÓMRÍKT LAND Fljótin Yenisei, Ob og Irtysh geta nú brátt runniá óhindruÖ í suðvestur og breytt eyöimörk, sem er á stærð við Frakkland í frjósamar baðmullarekrur. Og raforkuver við frárennsli vatn- anna, sem myndast í Síberíu og í skurðinum í Turgaiskörðum, geta framleitt 82000 milljón kílówattstundir raforku. (Þetta er um það bil 10-föld sú orka, sem hugsanlegt er að framleiða með vatnsafli hér á Íslandi. — Þýð.). Um 300 000 ferkílómetrar og 82 milljarðar kwstd. eru stórar tölur, sem mörgu geta áorkað, en þýðing þessara framkvæmda er þó ekki öll með þeim sögð. „Þurru og heitu vindarnir, sem valda svo miklu tjóni í akuryrkjuhéruðunum við Volgu og Don, eiga upptök sín á Arel-Kaspía-sléttunni“, sagði Davidov. ,,Ef þessar sléttur fá nægilegt vatn, vex að sjálfsögðu loftrakinn og funheitu suðaustanvindarnir, sem eru plága í þessum héruðum hverfa. Sömuleiðis mun vatnsborð fljótanna í Mið-Asíu, Kazakhst- an og Ural hækka og fljótin koma að meiri notum. Enn til við- bótar má nefna þann kost að iðnaðarhéruðin í nágrenninu fá þarna yfirfljótanlegt rafmagn, framleitt með vatnsorku.“ Skýrslur af Moskvufundinum segja að Davidov hafi orðið ,,hálfæstur“ þegar hann útskýrði ýms framtíðarmál í sambandi við þessa áætlun, og ungur stúdent, sem var viðstaddur gat ekki orða bundizt en hrópaði: „Þetta er stórkostlegt". Slíkur blær ríkti á fundi þessum, sem markar tímamót í menningarsögu aldarinnar og bar á stórkostlegan hátt vott um hugdirfð og bjart- sýni.

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.