Réttur - 02.05.1950, Síða 7
RÉTTUR
87
hann festi heiðursmerkin á brjóst Malaja-hermannanna
fyrir hreystilega framgöngu þeirra í stríðinu:
„Ég veit hve stolt þið eruð af þessum mönnum og
mótspyrnuhreyfingunni, sem þeir stjórnuðu. Við frá sam-
einuðu þjóðunum erum þakklátir."
Brezka blaðið „Strait Times“ sagði um sömu 'hermenn:
„Þeir voru fulltrúar þúsunda félaga sinna, sem þoldu
ótrúlega erfiðleika og pyntingar. Margir þeirra færðu
hina æðstu fórn, til þess að Malajalönd gætu orðið frjáls."
Þessum hetjum var boðið til Lundúna 1946 til þess að
taka þátt í sigurgöngunni miklu. Fremstur þeirra gekk
þar foringi þeirra, þjóðhetjan Lau Yiew. — 1948 skutu
brezkir hermenn Lau Yiew til bana í heimalandi hans.
1946 var heiðursmerkið British Empire Medal fest á
brjóst Tong Kin Nyan, bæjarstjórans í Pulai fyrir
hreysti bæjarbúanna í stríðinu. 1 skjalinu um afrekin
segir: „Þrátt fyrir ægilegar aðfarir óvinanna, sýndi hann
og íbúar bæjar hans mikið hugrekki og tryggð, meðan á
hertöku Japana stóð, með því að hjálpa og aðstoða brezka
liðsforingja, er höfðust við í frumskógunum“. — 1 ágúst
1948 réðust brezkar flugvélar á Pulai-bæ. Bærinn var
jafnaður við jörðu og þúsund íbúa, konur, börn og karl-
menn flúðu út í frumskógana, þar sem þeir áður höfðu
hjálpað brezkum liðsforingjum eftir mætti.
Slíkar voru þakkir Breta.
Hvað hafði gerzt eftir komu þeirra?
Silkiglófinn dreginn af stállinefanum.
„Nú kveð ég ei um afrek dýr!
En Englands fjandskap, morð og rán.
Því atför hver er klækur nýr,
Og hver einn sigur aukin smán —“.
Stephan G. Stephansson: „Transvaal“.
Malajar höfðu barizt til þess að fá fósturjörð sína og