Réttur - 02.05.1950, Qupperneq 25
J. V. STALIN
AU6UST BEBEL
hinn þýzki verkalýðsforingi
(Þann 22. febrúar s. 1. voru M.0 ár liðin frá fæðingu
Augusts Bebels, eins af ágætustu leiðtogum þýzks
verkalýðs. Árið 1910, þegar Bebel var sjötugur, ritaði
Stalín, þá þrítugur, afmælisritgerð þá, sem hér fer á
eftir).
Hver þekkir ekki Bebel, hinn virðulega leiðtoga þýzkra verka-
manna, sem einu sinni var óbrotinn járnsmiður, en nú er orðinn
frægur stjórnmálamaður, sem með gagnrýni sinni hefur hrakið
krýnda konunga og fræga lærdómsmenn á undanhald líkt og með
hamarshöggum: manninn, sem hinar mörgu milljónir þýzks verka-
lýðs hlýða á og fylgja eins og spámanni?
Þann 22. febrúar í ár (1910. Þýð.) átti hann sjötugsafmæli. Þann
dag fagnaði allur hinn skipulagði verkalýður Þýzkalands, alþjóða-
samband sósíalista, skipulagðir verkamenn í öllum löndum heims
fæðingardegi Bebels með þeirri viðhöfn og hátíðleik, sem skylt er.
Hvernig hefur Bebel unnið til slíks heiðurs, hverju hefur hann
til leiðar komið fyrir verkalýðinn? Hvernig hefur Bebel risið úr
lægst settu röðum verkalýðsins, hvernig hefur hann breytzt úr
„óbrotnum" járnsmið í hinn mikla forvígismann heimsverkalýðs-
ins? Hvernig er ævisaga hans?
í bernsku átti Bebel við fátækt og skort að búa. Þegar hann var
þriggja ára gamall, missti hann föður sinn, sem var uppgjafa liðs-
foringi, fátækur og tæringarveikur. Til að sjá börnum sínum fyrir