Réttur - 02.05.1950, Blaðsíða 10
90
— Ið enska gull skal fúna fyr
en frelsisþrá sé börð á dyr.“
RÉTTUR
„Ó, Bretland, trúðu ei tál það á:
Þú takir svona heimsins lönd,
með eldi og sverði er sigri spá —.
Nei, sverðið sker öll hjartabönd.
í heimsvald þitt þú heggur seint
upp hugi lýða — frá því snú —
því það var fyr til þrautar reynt,
en þar eru daprar rústir nú.
Ef þvílíkt veldi vexti nær,
á vizku og bróður-hug það grær.“
St. G. St.: Transvaal 1899.
Bretar hafa beitt vægðarlausri ógnarstjórn í Malajalönd-
um, til þess að bæla niður frelsisbaráttu fólksins, en allt
komið fyrir ekki. Þeir hafa haft 130 þúsund manna her,
búinn nýtízku drápstækjum, til þess að vinna á þessum
hraustu skæruliðum, en mótspyrna þjóðarinnar hefur vax-
ið. Hið ríka Bretland hefur eytt um 100 milljónum sterl-
ingspunda á ári til þess að brjóta á bak aftur frelsisþrá
þessarar fátæku, arðrændu þjóðar. En 'hugrekki hinna und-
irokuðu og ofsóttu hefur vaxið við kúgun arðræningjans.
Hið volduga brezka auðvald hefur kallað á Gurkha-villi-
menn til hjálpar sér. Þeir „hermenn" eru kunnir að því að
taka höfuðleðrið af vegnum fjandmönnum sínum. Bretar
nota líka blóðhunda til þess að elta uppi skæruliðana, sem
börðust áður gegn Japönum. Hið brezka auðvald og áróð-
urstæki þess, einnig á Islandi, segjast gera þetta í nafni
„menningar og lýðræðis", — það meinar tin og gúmmí.
En Bretland hefur samt ekki getað sigrazt á þessari fá-
mennu þjóð. Brezka stjórnin hefur beðið Ástralíu hjálpar.
Ástralska íhaldsstjórnin sendir flugvélar til þess að myrða
konur og börn. Nú þykir Bretum það viðeigandi, en þeir