Réttur - 02.05.1950, Page 36
116
RÉTTUR
henni sanngjarnt að slá striki yfir gengislækkunarlögin og
ákveða kaupgjaldsvísitöluna 112 stig!
Þessi óskammfeilna ákvörðun vakti svo megna óánægju
meðal verkafólks, að stjórn ASl sá sig til neydda að leggja
til við sambandsfélögin uppsögn allra samningá, miðað við
að hafa þá yfirleitt lausa 1. september n. k., með „kaup-
gjaldsbaráttu fyrir augun.“
Stjórn Fulltrúaráðs verka'lýðsfélaganna í Reykjavík skor-
aði á stjórn ASl að kalla saman skyndiráðstefnu verka-
lýðsfélaganna til þess að treysta einingu samtakanna og
undirbúa hina sameiginlegu baráttu. Þegar þetta er ritað,
er svar enn ekki komið, en afstaða ASl-stjórnar til þessara
mála mun verða mikils vert próf á hana í augum margra
fylgismanna hennar. v
Þróunin stefnir að almennum stéttaátökum. Verkalýður-
inn er að þreytast á hinum sífelldu ,.fórnum“, sem Marshall-
pólitíkin hefur krafið hann um.
Afstaða hægri mannanna í Alþýðuflokknum hefur und-
anfarið mótazt fyrst og fremst af hræðslunni við vaxandi
baráttuvilja verkalýðsins. Saman við það tvinnast áhyggj-
ur þeirra út af Alþýðusambandsþinginu á næstkomandi
hausti. Svar ríkisstjórnarinnar til þeirra hefur verið það
að 'hóta þeim bitlingamissi, hótun, sem án efa hittir ýmsa
beint í mark.
1 annan stað er það staðhæft, að báðir fulltrúar íhaldsins
1 sambandsstjórn 'hafi ásamt fulltrúa Framsóknarflokksins
greitt atkvæði gegn áskorun sambandsstjórnar um að segja
samningum upp.
Það er alveg víst, að afturhaldið mun neyta allra bragða
og nota öll sambönd sín innan verkalýðssamtakanna til
þess að sundra verkalýðnum í þeim átökum, sem framund-
an eru.
En þess meiri nauðsyn er á því, að allir verkamenn og
verkakonur, sem vilja allsherjar einingu stéttarinnar,