Réttur - 02.05.1950, Page 64
L44
RÉTTUR
flagga með veglyndi og láta af hendi rakna nokkurn hluta af vör-
unum sem „hjálp“ samkvœmt Marshalláætlun.
Bandaríkjastjórn hefur aukið útgjöld sín til hergagnakaupa og
annarrar óarðbærrar eyðslu. Með ýmisskonar sköttum hefur hún
tekið af bandarísku þjóðinni stórkostlegar fjárfúlgur til að standa
straum af útflutningsstyrkjunum.
Það er athyglisvert, að samkvæmt hagskýrsluhandbókinni Labor
Fact Book, New York 1949, hækkuðu ríkisskattarnir úr 8 milljörð-
um dollara 1941 í 47.5 milljarða dollara 1950. Samtímis hafa tekj-
ur bænda lækkað um 17 % miðað við 1948, og 1950 er búizt við enn
frekari lækkun, um 28%, á þessum tekjum.
Til hvers nota Bandaríkjamenn Marshalláætlunina? Bandarísku
einokunarhringarnir nota hana til að losa sig við vörubirgðir,
sem ekki fást kaupendur að á heimamarkaðinum, til að hamla
gegn kreppunni og leggja undir sig efnahagslíf annarra landa. Að
þessu sé svo farið, má sjá af því, hvers konar vörur það eru, sem
sendar eru til Evrópu, en það eru mest megnis kol og landbún-
aðarafurðir. Þessara vara geta lönd Vestur-Evrópu aflað heima
fyrir eða í öðrum Evrópulöndum.
Evrópulöndin þarfnast vélbúnaðar til að reisa við atvinnuvegi
sína, en einokunarhringar Bandaríkjanna hafa ekki áhuga á að
endurreisa atvinnuvegi þessara landa, og til eru nokkrar iðnaðar-
greinar, sem þeir láta alls ekki fá vélbúnað. Það er táknandi, að á
hálfu öðru ári Marshalláætlunarinnar fengu öll Vestur-Evrópulönd
námuvélar (sem þau hafa brýna þörf fyrir) fyrir samtals 31 millj-
ón dollara og málmiðnaðarvélar fyrir 35 milljónir dollara, en hins-
vegar tóbak fyrir meira en 110 milljónir dollara.
Fyrir stríð flutti Evrópa aldrei inn kol frá Ameríku. 1949 fluttu
Bandaríkin út 38 milljónir lesta af kolum til Vestur-Evrópu.
Bandaríkin notfæra sér eyðilegginguna í Evrópu til að láta kola-
hringa sína og skipafélög raka saman óhemju miklum gróða.
Bandarísk kol kosta nú komin til neytenda 18—20 dollara lestin,
en fyrir stríð þurfti neytandinn ekki að greiða nema 4—5 dollara
fyrir kol frá Evrópulöndum.
í lögum um Marshalláætlunina eru fyrirmæli, sett beinlínis í