Réttur


Réttur - 01.08.1950, Blaðsíða 59

Réttur - 01.08.1950, Blaðsíða 59
RÉTTUR 219 og snéri máli sínu til þjóðarinnar eins og förumunkamir. Trúmáladeila var nú í fyrsta sinn háð í áheym almennings. Árið 1520 sendi hann frá sér þrjú mergjuð rit, sem höfðu næstum því ótrúleg áhrif. Hér sást í fyrsta sinn, hvílíkur máttur fylgdi prentlistinni. Lúther óx ásmeginn, eftir því sem leið á deiluna og skoð- anir hans skýrðust. Hann byrjaði með árás á aflátssöluna, en hún snérist brátt í árás á páfa og síðan alla skipan kirkjunnar. Lúther lýsti yfir því, að páfastóllinn væri að- eins veraldleg stofnun, kirkjuþingunum gæti skjátlazt, en biblían ein væri óskeikul. Hann hneigðist að dulspeki og kenndi, að menn réttlættust ekki fyrir verk sín, heldur fyrir trú sina, trúin á Krist gerði hvern kristinn mann að presti, klerkastéttin hefði engin forréttindi fram yfir leikmenn, en báðir aðilar lytu beint veraldlegu valdi. Kenningar Lúters bárust með vængjum vindanna út um Evrópu og vöktu ýmist fyrirlitningu eða fögnuð hjá fólki. I þúsund ár hafði kirkjan reynt að fullvissa Vesturlanda- búa um það, að þeir gengju á guðs vegum, ef þeir hlýddu leiðsögn sinni. Kirkjan fékk að vísu að kenna á því, að laun heimsins eru vanþakklæti, því að ýmsir höfðu komið fram öðm hverju og gert uppsteyt gegn handleiðslu henn- ar, en 15. öldin var þó fremur kyrrlátt tímabil í trúarefn- um. Nú sauð skyndilega upp úr að nýju, og hans heilag- leiki páfinn var úrskurðaður erindreki satans, prestarnir aðeins venjulegir menn og helgisiðir og sakramenti kirkj- unnar, sem vom samtvinnuð daglegu lífi fólks, voru ýmist talin ónauðsynleg eða hættulegt kukl. Slíkur boðskapur virðist ekki vera vel til þess fallinn að vekja hrifningu hjá hugsandi fólki. Hið grófa og safaríka orðbragð Lúthers gerði þó rit hans að metsölubókum síns tíma eins og ósið- leg efnisatriði í bókmenntum á 20. öld. Trúarboðskapurinn og dulspekin skiptu ekki mestu máli í kenningum hans, heldur árásir hans á forn máttarvöld. Það bárust rosa- fréttir til eyrna Pólverja, Tékka og Ungverja, spanskir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.