Réttur


Réttur - 01.05.1961, Side 18

Réttur - 01.05.1961, Side 18
178 R É T T U R ramleik, aldrei trúað því að okkar iðjusama þjóð gæti sjálf byggt þetta land, sjálf átt öll þess fyrirtæki, sjálf notið ávaxtanna af auð- lindum landsins og erfiði sínu. Ríkisstjórnin og flokkar hennar treysta ekki á þjóðina, heldur hræðast hana. Þessir aðiljar treysta á erlent auðvald og vilja allt gera til þess að lokka það til landsins: vilja afhenda því valdið yjir íslenzkum auðlindum, vilja afhenda því yfirráðin yfir íslenzku vinnuafli til arðránsins og þeir vita að erlent auðvald hefur því að- eins áhuga fyrir íslenzku vinnuafli að það sé bœði ÞÆGT og ÓDÝRT. Ríkisstjórnin er með bráðabirgðalögunum að reyna að sanna e.r- lendu auðmagni að hún sé valdið í landinu, auðhringunum sé óhœtt að festa fé sitt, verkalýðurinn verði þœgur undir okinu og stjórnin sterk. Og ríkisstjórnin er með gengislœkkuninni að reyna að segja er- lendum auðhringum: þið getið grœlt á íslenzkum verkalýð, þó hann hafi verið nógu sterkur til að sigra í verkföllunum, — við, ríkis- stjórnin, œtlum alltaf að lœkka gengið, ej hann liœkkar kaupið, svo hans hátign, erlent fjármagn, geti verið örugg um sinn gróða. Þetta er alvarlegasta og hættulegasta atriðið í gerræðislögunum og framkvæmd þeirra. Með gengislækkuninni er verið að valda svo til allri þjóð vorri tjóni, en verið að gera ísland og íslenzka þjóð fýsilega til arðráns fyrir erlent auðvald, — verið að reyna að gera ísland að raunveru- legri nýlendu á ný. Og þetta illa verk er framkvæmt á þann gerræðisfyllsta hátt, sem slíkt verk hefur nokkru sinni verið framið hér á landi, jrannig að verði slíkum verknaði og afleiðingum hans og illum tilgangi ekki hrundið, þá gæti þessi verknaður orðið upphaf harðstjórnar erlends auðvalds á Fróni. En gæfa íslands og þróttur íslenzkrar aljrýðu munu nægja til joess að koma í veg fyrir slíka ógæfu. Hverjir bera óbyrgðina? Með bráðahirgðalögunum er ekki aðeins vegið að alþýðunni og þjóðinni allri, að hagsmunum launþega og sjálfstæði þjóðarinnar. Með þessum lögum er Alþingi þannig svipt valdi sem það hefur

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.