Réttur


Réttur - 01.05.1961, Síða 37

Réttur - 01.05.1961, Síða 37
R E T T U R 197 tveggja miiljóna íbúa borg, gerðist hún þess albúin að veita Prúss- um varmar viðtökur. Um miðjan september voru fyrstu erlendu sveitirnar komnar að París og hófu árás. Þá var þetta orðið að veru- leik: alþýða götunnar stóð eins og veggur gegn erlendum yfirstéttar- her. Borgarastétt Frakklands varð því skelfd, og hún liagaði sér í samræmi við það. 27. október gafst Bazaine hershöfðingi — einn af þeim, sem aldrei þreyttist á því að brigzla hinu „guðlausa“ lýðveldi um föðurlands- svik — upp í víginu Metz og ofurseldi Prússum 170 þúsund manna herlið. Parísarbúar urðu mjög reiðir þjóðsvikum stjórnarinnar, og fjórum dögum síðar varð uppreisn í París undir kjörorðinu „berj- ust til þrautar". En uppreisnin fór út um þúfur. Meðan þessu fór fram settust erlendu hersveitirnar um París. Og alþýða höfuðborg- arinnar hélt áfram að veita viðnám. 22. janúar 1871 varð önnur uppreisn gegn stjórninni, en var barin niður. 28. janúar gafst Troe- hu hershöfðingi upp á því að verja París og seldi Prússum sjálf- dæmi í stríðinu. Þeir gerðu frönsku stjórninni harða friðarkosti, innlimuðu Elsass-Lótringen og kröfðust 5 milljarða franka stríðs- skaðabóta. Á meðan skuldin væri ekki af hendi reidd, héldu þeir nágrenni Parísar og ýmsum héruðum hernumdum. 8. febrúar 1871 fóru fram þingkosningar í Frakklandi. Þær fluttu hægri menn að meiri hluta inn á þing, og var nú mynduð ný stjórn hálfu verri en „ríkisstjórn þjóðvarnanna“. Thiers var forsætisráð- herra. 3. marz slaðfesti þingið friðarsamningana við Þjóðverja. Öánægjan og andspyrnan fór sívaxandi í París. Meðal alþýðunn- ar i borginni höfðu um miðjan febrúar myndazt lýðræðisleg sam- tök, sem nefndust Lýðveldisbandalag Þjóðvarðarins við Signu. 415 af 470 riðlum Þjóðvarðarins gengu í bandalag þetta. í miðnefnd bandalagsins áttu sæti margir af helztu forustumönnum verkalýðs- hreyfingarinnar. Mjög fljótlega komust öll raunveruleg völd í borg- inni á hendur miðnefndar Þjóðvarðarins. Verkalýður Parísarborg- ar var sterkur. „Loks hinn 28. janúar 1871 gafst hin langsoltna París upp. En hún gerði það með heiðursbrag, sem hingað til hefur verið óþekktur í styrjaldarsögu. Vígin voru rýmd, hringmúrinn ruddur

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.