Réttur


Réttur - 01.05.1961, Page 57

Réttur - 01.05.1961, Page 57
VIÐSJA Mesta ‘gerbylting mannkynssögunnar: Kommúnisminn framkvæmdur í Sovétrikjunum. Kommúnistaflokkur Sovélríkjanna hefur nú sent frá sér uppkast að nýrri stefnuskrá, þar sem mörkuð er leiðin til sköpunar sameign- arþjóðfélagsins, kommúnismans í Sovétríkjunum. Fyrsta stefnuskrá flokksins var samþykkt 1903 á 2. flokksþinginu. Hún vísaði leiðina til alþýðubyltingarinnar í hinu víðlenda rúss- neska keisaradæmi. Önnur stefnuskrá flokksins var samþykkt 1919 á 8. flokksþinginu. Hún markaði veginn til sköpunar hins sósíalistiska þjóðfélags í Sov- étríkjunum. Og nú verður það verkefni 22. flokksþingsins í október 1961 að samþykkja þriðju slefnuskrána, að undangengnum miklum umræð- um um hana með allri alþýðu Sovétríkjanna. Marxisminn skiptir þróunarskeiði sósíalismans sem þjóðfélags í tvennt: Hið fyrra — skeið sósíalismans einkennist af reglunni: Sér- hver fái í sinn hlut samkvæmt Jjví, sem hann vinnur fyrir. Á þessu skeiði eru framleiðslutækin enn eigi nógu mikil til að skapa alls- nægtir, það verður Jdví að skírskota til eiginhagsmuna hvers ein- staklings til að efla heildarframleiðsluna sem mest, Jjar af leiðandi misjöfn afköst, misjöfn laun. Á þessu skeiði er og ríkisvaldið mjög sterkt, hið sósíalistiska þjóðfélag verður að vera hervætt á allan hátt gegn auðvaldinu erlendis og áhrifum þess innan landsins sjálfs. Hið síðara skeið er Jjjóðfélagsskeið kommúnismans, hið full- komna mannfélag sameignarinnar, þar sem allsnægtir og frelsi verða hlutskipti mannanna. Forsendur þessa Jjjóðfélagsskeiðs eru þær að framleiðslulækin og rekstur þeirra með sjálfvirkni og ódýrri orku séu orðin svo fullkomin að hægt sé að skapa allsnægtir handa öllum meðlimum þjóðfélagsins, — og að sigur sósíalismans í heiminum sé orðinn svo ótvíræður að hægt sé að láta ríkisvaldið deyja út.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.