Réttur


Réttur - 01.05.1961, Page 61

Réttur - 01.05.1961, Page 61
R E T T U K 221 „Efnahagsbandalagið" — hiS nýja auðhringaríki Vestur-Evrópu. Frá því hinir voldugu auðliringar tóku að vaxa upp fyrir og um síðustu aldamót í hinum gömlu auðvaldsríkjum Vestur-Evrópu, Englandi, Frakklandi og Þýzkalandi og mylja frjálsa samkeppni og smáatvinnurekendur undir járnhæl sínum, hefur auðmannastélt hvers þessara landa dreymt um að leggja hin auðvaldsríkin undir sig, en taka sjálf forustuna og aðalgróðann. I byrjun aldarinnar dreymdi þýzka auðvaldið um að sameina keisaradæmin þýzku og austurrísku og ýmis smærri ríki í eitt tolla- bandalag, sem átti að vera undanfari pólitískrar sameiningar, og gera Frakkland að eins konar lénsríki sínu. Franska auðvaldið eyði- lagði þessar fyrirætlanir sínar með bandalagi sínu við England og Rússland. Með styrjöldinni 1914—18 og byltingunum í lok hennar hrundi draumur þýzka auðvaldsins um „Mið-Evrópu“. Eftir stríðið 1918 kepptu frönsku og ensku auðmannastéttirnar um, hvort þeirra næði forustu í Vestur-Evrópu og studdust á víxl við þýzka auðvaldið. Franska auðvaldið skóp stálhring Evrópu með kolakóngum Ruhrhéraðsins, en brezka auðvaldið skákaði í stað- inn fram Locarno-bandalaginu. Með „Dawes“-áætluninni 1924 og »Young“-áætluninni 1929 skarst ameríska auðvaldið í leikinn í Ev- rópu. Brezka og ameríska auðvaldið endurreistu þýzku auðhring- ana og hjálpuðu til að endurvopna Þýzkaland og studdu að eflingu nazismans, en þann draug hugðist auðvaldið magna til árása á Sov- etríkin. Hámarki náði sú viðleitni í Múnchen-samningunum haustið 1938. I styrjöldinni 1939—45 kom þýzka auðhringavaldið á samein- mgu Vestur- og Mið-Evrópu undir sínum eigin ægishjálmi: „nýskip- an Evrópu“. Stálhringur Evrópu vann á þeim stríðsárum að því að sniiða vopn nazismans gegn Sovétríkjunum. Eftir síðari heimsstyrjöldina hugðist brezka auðvaldið halda á- fram Múnchen-stefnunni með því að sameina Vestur-Evrópu undir S1nni forustu. En brezka auðvaldið var of veikt til að vinna þetta Verk. Anieríska auðvaldið var hið sterka afl auðvaldsheimsins eftir stríðið — og með „Marshall“-áætluninni 1948 tók það forustuna í Yestur-Evrópu. Amerísku auðhringarnir veittu stórfé inn í Vestur-Þýzkaland og

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.