Réttur - 01.09.1962, Blaðsíða 23
R E T T U R
215
reyna að vera með í því að gera ísland raunverulega sjálfstætt ríki
og byggja atvinnulíf vort þannig upp að vér Islendingar réðum því
sjálfir og einir.
x—x—x
Skulu nú nokkur úrræði vor athuguð nánar:
1. Hcildarstjórn ó þjóðarbúskapnum, samkvæmt heildaróætlunum til
nokkurra óra i senn hvað fjórfcstingu snertir.
Það er óhjákvœmilegt fyrir svona fámenna þjóð, sem vora, ef
hún œtlar að halda sjálfstœði sínu, að ríkisstjórn hennar, hver sem
hún er, beri umliyggju fyrir þjóðinni sem heild í efnahagsmálunum.
Þjóðin verður að standa sameinuð um heildarhagsmuni sína út á
við. 011 framleiðsla, útflutningur og innflutningur vor lslendinga
er ekki meiri en hjá rneðal fyrirtæki erlendis. Þjóðarframleiðsla vor
mun vera undir 10 milljörðum (10 þúsund milljónum) króna. Velta
Unilever-hringsins, sem hefur aðsetur sitt í Hollandi, er 3721 millj-
ónir dollara, eða 156 milljarðar íslenzkra króna. Velta Shell er
5344 milljónir dollara.
I þeim frumskógi grimmra auðhringa, sem auðvaldsskipulagið er,
verður þjóð eins og vor troðin undir, slitin í sundur og gleypt, ef
hún ekki ver sig sjálf með góðri heildarstjórn á þjóðarbúskap sín-
um og víggirðir sig gegn ásókn villidýra auðsins með öflugri og
framsýnni yfirstjórn ríkisins á utanríkisverzluninni.
Ríkisstjórn lslands verður að bera ábyrgð fyrir velferð þjóðar-
innar, efnahagslegu öryggi hennar og sjálfstæði, — ella ofurselur
hún þjóðina sundraða og varnarlausa þessum vörgum, hinum vold-
ugu auðhringum, nágrönnum vorum.
Með núverandi stjórnarstefnu er einmitt verið að leysa þjóðina
upp í máttlitla einstaklinga og smáfyrirtæki, sem verða auðveld bráð
erlendum auðhringum. Þetta er gerl undir yfirskyni „frelsisins41.
En „frelsið“ í auðvaldsheiminum þýðir vald þess stóra og ríka til
að fótumtroða eða gleypa þann smáa, — frelsi Unilever og Findus
lnternational til að arðræna og eignast hraðfrystiiðnað íslendinga
og drottna yfir fiskframleiðslu vorri.
Einmitt heildarstjórn á þjóðarbúskapnum í þágu þjóðarheildar-
innar er tryggingin fyrir frelsi íslendinga, — frelsi einstaklinganna
hér heima, sem allir eru smáir á mælikvarða auðhringanna, — en
eru sterkir samanlagt, ef við stöndum sem órofa heild.