Réttur


Réttur - 01.09.1962, Page 37

Réttur - 01.09.1962, Page 37
H E T T U R 229 Rétta svarið við inngöngu Breta í EBE. 1' lokksþingið gerði ályktun varðandi afleiðingarnar af inngöngu Breta í Efnahagsbandalag Evrópu. Viðskipti Kanada eru að yfir- gnæfandi hluta við Bandaríkin. Utflutningur til Samveldisland- anna er samt verulegur hluti, um 20%, og byggist á tollaívilnunum innan Samveldisins. Borgaraflokkarnir halda því fram, að hinn tímabundni uppgangur í viðskiptalífinu sé í hættu ef Bretland gengur i Efnahagsbandalagið og leggja ábyrgðina á herðar Bretum. Höfuðástæðan fyrir vaxandi kreppu í stjórnmálum Kanada er undirgefnin við Bandaríkin og þátttaka landsins í því kalda stríði á viðskiptasviðinu, sem haldið er uppi af einokunarhringunum. Kommúnislaflokkurinn herst fyrir nýrri, þjóðlegri stefnu, sem er eina raunhæfa svarið við inngöngu Breta í Efnahagsbandalagið og „Atlantshafs-viðskiptasamfélagi“ Kennedys, en þetta tvennt myndi aðeins herða tök erlenda aðilja á efnahagslífi Kanada, valda frekari hnignun iðnaðar, auknu alvinnuleysi og meiri fátækt bændaalþýðunnar. Barátta fyrir nýrri stefnu er eina svarið við þeirri stefnu „samruna" við Bandaríkin, sem tekin var upp 1947 af stjórn Frjálslynda flokksins og síðan hefur verið haldið áfram af núverandi ihaldsstjórn. Ný, þjóðleg stefna fyrir Kanada myndi óhjákvæmilega vera fólgin í eftirfarandi: Snúið yrði af braut kalda stríðsins á öllum sviðum, tekin upp frjáls utanríkisviðskipti, einkum við sósíalist- ísku löndin, Suður- og Mið-Ameríku og hin nýfrjálsu ríki. Kan- ada tæki upp hlutleysisstefnu. Bandarísku einokunarfyrirtækin, sem hafa úrslitaáhrif í iðnaðinum, yrðu þjóðnýtt, heildaráætlun gerð um uppbyggingu, sem tryggði sjálfstæði Kanada, útrýmdi liinu landlæga atvinnuleysi og byndi enda á hina hlutfallslegu hnignun iðnaðarins í þjóðarbúskapnum. Þingið staðfesti stefnu flokksins varðandi friðsamlega sambúð þjóða og fordæmdi öll frávik frá þeirri stefnu. I skýrslu sinni lagði flokksstjórnin áherzlu á nauðsyn þess, að gera alll Ijósara varð- andi barátiuna fyrir friði. „Kommúnistar verða stöðugt að leggja áherzlu á þá aðvörun, sem sett var fram í ályktun flokkanna 81, haustið 1960, að „baráttan gegn stríðshættunni verður að heyj- ast nú, en ekki þegar atóm- og velnissprengjur eru byrjaðar að falla, og hún \erður að eflast dag frá degi. Það er mikilvægast að

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.