Réttur - 01.09.1962, Síða 40
EZEKIAS PAPAIOANNU:
Barátta alþýðunnar á Kýpur fyrir
frelsi og félagslegum framförum
lEzekías Papaioannu er aðalritari Framfaraflokks alþýðunn-
ar á Kýpur (AKEL), en svo heitir hinn sterki verkalýðsflokkur
Kýpurbúa. Hann er íæddur 8. okt. 1908, bóndasonur og kynntist
snemma erfiðu lífi Kýpurbúa við vinnu í málmnámunum í Skour-
iotissa og Kalavasos. 1930 fór bann til Englands og tók þátt í
baráttu brezka verkalýðsins. 1931 gekk bann í Kommúnistaflokk
Bretlands. 1936 barðist bann með lýðveldishernum á Spáni. 1946
varð hann ritstjúri „Dimokratis", sem er aðalblað Framfara-
flokksins. 1949 var hann kosinn aðalritari flokksins. 1955 var
flokkurinn bannaður, þegar ofsóknir brezka auðvaldsins voru
harðastar. Allan þann tíma starfaði Papaioannu leynilega, unz
bannið var afnumið í des. 1959. 1960 var bann kosinn á þing
hins nýstoínaða lýðveldis.I
Nú er liðið hálít annað ár síðan Kýpur var lýst óháð lýðvekli.
Allan þann tíma hefur hið unga ríki orðið að berjast við mikil efna-
hagleg og stjórnarfarsleg vandamál, er eiga rót sína að rekja til
hinnar löngu nýlendukúgunar og urðu ennþá flóknari við samn-
ingana í Zúrich. (Þar voru samningarnir um lýðveldisstofnunina
gerðir. Ritstj.).
Brezku nýlenduherrarnir, sem enn halda herstöðvum á eynni, létu
unga lýðveldinu mjög lítilfjörlegt efnahagslíf í arf. Heildarfram-
leiðsla landsins var metin á 78 milljónir sterlingspunda, en hallinn
á utanríkisviðskiptunum var 22 milljónir punda. Dýrtíð var mikii.
Tala atvinnuleysingja var yfir 10.000.
Það sýnir vel hve frumstætt og fátæklegt efnahagslíf Kýpur var,
að af heildartekjunum kom frá landbúnaðinum 23%, iðnaðinum
12%, námugreftri 12% og verzlun 10%. Efnahagslífið var að miklu
leyti háð annars vegar störfum fyrir brezku nýlenduherrana og hins
vegar gjaldeyrisgreiðslum Kýpurbúa, er búsettir voru erlendis, til
frændfólks síns.
Landbúnaðurinn er á lágu stig. Þriðjungur alls ræktaðs lands iil-