Réttur - 01.09.1962, Blaðsíða 57
R É T T U U
249
Þannig er og með þann þátt læknisþjónustu, sem lýtur að grein-
ingu og lækningu sjúkra. Hún kemur því aðeins að fullum nolum
fyrir alla, að til sé tryggingakerfi, sem íært er að bera kostnaðinn
við liana.
1 auðvaldsríkjum, jafnvel hinum ríkustu, þar sem mikill liluti
launafólks nýtur ekki verndar tryggingakerfis og læknishjálp er
seld „réttu verði“ verða margir að lifa og deyja án þess að verða
læknisþjónustu aðnjótandi. Þannig kemur stéttarafstaða iil læknis-
þjónustu skírast fram í Bandarikjunum. Má í þvi sambandi minnast
þess, að Islendingar, sem dvalizt hafa þar, hafa komið heim iil
Islands vegna þess, að þeir höfðu ekki efni á að vera veikir þar í
landi — jafnvel ekki fæða barn.
Núverandi forseti Bandarikjanna hefur sem kunnugl er gert að
slefnumáli sínu að ráða bót á lögmáli einkaframtaksins í læknis-
þjónustu og korna á íryggingum hins opinbera fyrir eldra fólk,
einmitt þann bluta þjóðarinnar, sem helzt þarf á læknishjálp að
halda. Bragð er að, þá barnið finnur. Læknisþjónustan þvingar jafn-
vel hina kunnustu einkaframtaksmenn íil félagslegs þankagangs.
Þegar læknisþjónustan er slíkt leiðarljós fyrir ríka og fátæka, til
að sinna þörfum mannlegs samfélags, ætlu allir viti bornir íslend-
ingar að meta varðstöðu lækna um þessa tegund þjónustu.