Réttur


Réttur - 01.09.1962, Side 76

Réttur - 01.09.1962, Side 76
268 K É T T U I! bædsjan, Moldavíu, Úsbekistan, Tadsjikistan, Túrkmenistan, Kirg- isíu, Kasakstan, Lettlandi, Lítúvu og Eistlandi. Arangursmiklar rannsóknir fara fram í hér um bil 4000 rann- sóknarstöðvum og tilraunastofnunum í Ráðstjórnarríkjunum. 1 landinu eru rúmlega 400.000 vísindamenn, og er það 40-föld tala vísindamanna fyrir byltinguna. Engin þjóð er í þjóðabræðralagi Ráðstjórnarríkjanna, að hún eigi sér ekki sinn hóp visindamanna. Þróun auðvalds og örbirgðar í Bandarikjum Norður-Amcriku. Tala atvinnuleysingjanna í Bandaríkjunum þeirra, sem alls enga atvinnu hafa, er fimm milljónir. Nokkur bundruð milljónunga hafa hins vegar stóraukið auðæfi sín. Á síðustu 20 árum hefur þriðjungur bændanna orðið gjaldþrota og flosnað upp. Þetta er fyrirmyndar-ríki „viðreisnar“-poslulanna íslenzku. Kennedy forseti sagði í ræðu, að „17 milljónir Bandaríkjamanna gengju soltnir til svefns hvert einasta kvöld“. Hann sagði og að það væri hneyksli að lífsafkoma 32 milljóna Bandaríkjamanna væri til skammar ófullnægjandi. „Það er smán,“ sagði hann, „að 7 millj- ónir landa vorra verða að lifa á bónbjörgum, að 5 milljónir íbúða í borgum og bæjum hafa hvorki vatn né skolprennsli.“ Auðvaldið notar tækniframfarirnar til þess að auka gróða sinn og rýra hlut alþýðu. Frá aldamótunum og þar til nú hefur hlutdeild verkamanna, starfsfólks og annars alþýðufólks minnkað úr 59,7% af þjóðartekjunum niður í 45,9%. Enn þá ægilegri verður þó misskipting auðs og afkomu, þegar samanburður er gerður við afkomuna í nýlendum og nýfrjálsum löndum, sem enn búa við arðrán auðvaldsins í Ameríku og Evrópu. Arðrón auðvaldsins og örbirgð nýlendnanna. „New York Times“ viðurkennir að „viðleitnin til að bæta kjör alþýðu í vanþróuðu löndunum hafi sorglega mistekizt." Næstum tveir milljarðar meðbræðra okkar svelta, þjást af sjúkdómum án vonar um læknishjálp, ganga í tötrum, skortir þak yfir höfuðið, — og það, sem verst er, án vonar um að örlög þeirra eða framtíð barna þeirra verði betri. Ameríski auðmaðurinn Randall segir í bók sinni um þessi mál 1959: „Velferð okkar og fátækt þeirra (vanþróuðu landanna) eru orðnar ósambærilegar stærðir .... Gjáin á milli slækkar með hverju ári, — ríku löndin færast fjær þeim fátæku.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.