Réttur - 01.01.1966, Side 31
R ETT UR
31
Það er vissulega rétt sem sagt hefur veriÖ að sextíu alþingismenn
geta ekki átt sæti í samninganefnd og gengið þannig í einstökum
atriðum frá jafn flókinni samningagerð og þeirri sem unnið hefur
verið að við svissneska alúmínhringinn. En það eru einnig mjög
óeðlileg vinnubrögð að þetta mál komi fyrst til kasta alþingis sem
sanmingur við erlendan auðhring. Hér er um að ræða gerbreytingu
á meginstefnu í atvinnumálum og efnahagsmálum á íslandi, frá-
hvarf frá þeim meginatriðum sem menn hafa talið sjálfsögð og
óhjákvæmileg til skamms tíma, að þróun atvinnuvega á íslandi eigi
að vera í höndum íslendinga sjálfra en erlendu fjármagni sé bann-
aður atvinnurekstur hér. Þegar rikisstjórnin hafði í hyggju að
breyta þessar.i meginstefnu bar henni að sjálfsögðu að bera þá hug-
mynd undir alþingi í almennu formi, gera tillögur um lagabreytingar
sem óhjákvæmilegar væru í þessu skyni ásamt fyrirvörum og skil-
yrðum sem tryggja ættu hagsmuni íslendinga. Alþingi bar jyrst að
taka ákvörðun um meginstejnuna áður en jarið vœri að ganga frá
tilteknum samningi, hið almenna átti að koma á undan hinu sérstaka.
Þannig hefur ekki verið á málum haldið, og ég sé ekki betur en
ætlun ríkisstjórnarinnar sé sú að láta almenna lagasetningu halda
sér en leggja samninginn við svissneska hringinn fyrir sem undan-
tekningu. Þá verður undanþágan svo risavaxin að hún yfirgnæfir
almennu regluna gersamlega.
Astæðan fyrir þessum annarlegu vinnubrögðum er sú að íslenzk
stjórnarvöld hafa frá upphafi einsett sér að samningar við svissneska
alúmínhringinn skyldu takast og því vildi ríkisstjórnin ekki binda
sig fyrirfram v.ið neina meginstefnu sem gæti torveldað henni samn-
ingagerðina — hún þurfti að vita á hvaða kröfur svissneska hrings-
ins hún yrði að fallast áður en hægt var að setja almennar reglur
um aðstöðu erlends atvinnurekstrar á íslandi. Þær staðreyndir sem
nú blasa við úr samningagerðinni við Svisslend.inga sýna einnig að
almenn lagasetning um réttindi og skyldur erlends atvinnurekstrar
á íslandi hefði orðið að vera næsta kynleg, ef samningurinn við
alúmínhringinn hefði átt að rúmast .innan hennar. Eg er hræddur
um að ríkisstjórnin hefði átt erfitt með að leggja fyrir Alþingi al-
mennar tillögur um að erlendur atvinnurekstur skyldi heimilaður
á íslandi og hann skyldi njóta stórfelidra forréttinda fram yfir ís-
lenzkan atv.innurekstur á flestum sviðum, hann skyldi fá raforku
fyrir brot af því verði sem íslenzkir atvinnuvegir greiða, hann skyldi
njóta tollfrelsis meðan íslenzkir atvinnuvegir verða að standa undir