Réttur - 01.01.1966, Qupperneq 53
RETTUR
53
áætlun þessi, t. d. á sviði heilbrigðismála. Sumar þeirra hafa verið
næsta gagnslitlar og er því jafnvel haldið fram að af þeim sé hreinn
afturhaldskeimur. En slíkt er vanmat, því að þessi viðbrögð forystu-
manna í stjórnmálum hafa aítur leitt af sér ákveðnari baráttu hinna
fátæku. Þó að frelsisbarátta blökkumanna haf.i hér sem oftar skorið
■sig úr.
Raunhæf áætlun.
Það má ljóst vera að sú fjöldafátækt, sem ríkjandi er í Banda-
ríkjunum, verður ekki yfirunnin með þeim aðferðum, sem borgara-
legir stjórnmálamenn hafa í frammi. Til þess að árangur náist er
nauðsynlegt að gera sér grein fyrir hinum raunverulegu orsökum
vandamálsins og vinna síðan áætlun samkvæmt því. Slík áætlun
þarf að innihalda:
1. Skipulagða atvinnuútvegun. 2. Aukningu kaupmáttarins.
3. Afnám kynþáttamisréttis til starfsvals. 4. Auknar almannatrygg-
ingar. 5. Bætta menntun og þjálfun. 6. Skipulagða uppbyggingu
atvinnulífs á hinum bágstöddu svæðum. — Slík áætlun virðist erfið
í framkvæmd og ærið kostnaðarsöm, en hún er ekki kostnaðarsöni
þegar tillit er til þess tekið að nauðsynleg útgjöld í þessu skyni,
25 milljarðar dala á ári, eru ekki hehningur þess, sem eytt er til
hernaðar árlega. I raun og veru er það hinn kostnaðarsami stríðs-
rekstur Bandaríkjamanna, sem gerir framkvæmd raunhæfrar áætl-
unar erfiða. Við greiðum fyrir vopnin með atvinnuleysi, sárri fá-
tækt og ófullkomnum almannatryggingum, um leið og okkur skortir
tilfinnanlega sjúkrahús og skóla. Barátta gegn fátækt er þannig
nátengd baráttunni fyrir friði og mannréttindum. I slíkri baráttu
getur lóð verkalýðshreyfingarinnar vegið þyngst, en hún hefur því
miður á undanförnum árum oft gleymt hlutverki sínu, er sumir
forystumanna hennar liafa látið blindast af áróðri ekki sízt hinum
magnaða andkommúnisma.
— Það þarf varla að taka það fram, að ofannefndar áætlanir
leysa ekki vandamálið -— framkvæmdir samkvæmt þeim geta aðeins
mildað fátæktina. Til að leysa vandamálið er nauðsynlegt að leita
dýpra, og þá fyrst er arðrán auðjöfranna á skapendum auðæfanna
hefur verið afnumið er lykillinn að lausninni fundinn.