Réttur


Réttur - 01.06.1936, Page 1

Réttur - 01.06.1936, Page 1
RETTUR XXI. ÁRG. JÚNÍ—JÚLÍ 1936. 4.-5. HEFTI GJaldþrot auðvaldsins á Islandi og loka|iáI(ur Jónasar frá Hriflu. Eftir Einar Olgeirsson. III. Sjálfstæði íslands og erlend yfirdrottnun. Saga íslands er saga stétta- og þjóðarkúgunar. Auk þeirrar kúgunar undirstéttanna, sem viðgeng- izt hefir frá landnámstíð, hefir þjóðin í hálfa sjöundu öld verið undir erlendri yfirdrottnun. Það er lærdóms- ríkt nú að minnast þess stuttlega, hvernig landið áður missti sjálfstæði sitt. Nútíminn getur ýmislegt af því lært. Höfðingjar Sturlungaaldarinnar, þeir herrar, Giss- ur Þorvaldsson, Sturla Sighvatsson og aðrir, leituðu sér sem sterkastra bandamanna í baráttu sinni fyrir auð og völdum á íslandi, — og bandamaðurinn, sem mest kapphlaupið var um að ná, var Noregskonung- ur. Þeir ætluðu sér að vísu alltaf völdin sjálfum, — ætluðu aðeins að nota vald Noregskonungs í sína þjónustu, — en Noregskonungur knúði þá til að standa við loforðin og sendi Hallvarð gullskó og hvað þeir nú hétu til að herða á þeim. Og Gamli sáttmáli var gerður, — samningur verstu höfðingjanna við hið erlenda vald var staðfestur af Alþingi. Skatt- skyldan var ákveðin. En það var samt langt frá því að öllum fornum réttindum væri þar með afsalað. Það tók 3—400 ár að fullkomna verltið, sem Gissur 81

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.