Réttur


Réttur - 01.06.1936, Blaðsíða 12

Réttur - 01.06.1936, Blaðsíða 12
Fyrri byltingar á Spáni voru alltaf mjög langvar- andi, eins og Marx réttilega hefir bent á. „Spánverjar hafa aldrei tekið upp tízkuhætti Frakka .... að byrja byltingu og ljúka henni á þrem dögum. Allar tilraunir Spánverja á því sviði eru bæði langvarandi og umsvifameiri. Það minnsta, sem þeir virðast komast af með, eru 3 ár og bylting- araldan helzt stundum um 9 ára skeið“. Núverandi byltingaralda hófst 1930 og þetta er því sjöunda árið hennar. Nú er áríðandi að vita: í hverju er þessi bylting írábrugðin fjölmörgura öðrum, sem á undan eru gengnar? Eða ef spurt er af meiri hagsýni: Hvað verður spánski kommúnista- flokkurinn að gera, til þess að hindra það, að þessi bylting verði árangurslaus og ljúki með nýjum sigri afturhaldsins? Til þess að svarið byggist á vísindalegum grund- velli skulum við víkja nokkuð að landafræði Spánar og sögu. Hversvegna dróst Spánn aftur tir? Spánn er nú einasta landið í V.-Evrópu, þar sem hættir lénsskipulagsins ríkja enn. Spurningin er bara, hvort hægt er að telja Spán með V.-Evrópu, því frá sjónarmiði landfræðingsins er Spánn miklu líkari Afríku en V.-Evrópu. Gamalt spakmæli segir líka, að Afríka byrji við Pyreneafjöllin. Pyreneafjöllin eru voldugur skilveggur milli Spán- ar og V.-Evrópu. Tindar þessara fjalla eru að vísu lægri en tindar Alpafjallanna, en skörðin liggja hærra, og af þeim sökum eru Pyi'eneafjöll enn meiri hindrun fyrir alla umferð, en Alpafjöllin. Landfræðingurinn Reclus hefir sérstaklega bent á afríkanskan blæ Spánar. (Portúgal er aftur á móti fullkomlega vestur-evi'ópískur frá landfræðilegu sjónarmiði). Það er með Spán eins og Afi'íku; um meginlandið kvíslast fjallgarðar, sem sundra einingu 92

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.