Réttur


Réttur - 01.06.1936, Blaðsíða 20

Réttur - 01.06.1936, Blaðsíða 20
Milj. hekt. Borgir, vegir o. s. frv. 1.441 Gróðurlendi 20.330 Þar af í órækt 5.019 Ræktað land 15.311 Af þessu sést, að í landi þessu, þar sem 57 % íbúa fást við landbúnað, eru aðeins 40% gróður- lendi, og þar af er einn fjórði hluti ár eftir ár í órækt. Mikill hiti og úrkomuleysi eru án efa tals- verðar tálmanir fyrir því að auka ræktað land. Tals- verðar, en alls ekki óyfirstíganlegar. Með því að notfæra sér nýtízku tækni hafa Bandaríkjamenn með „þurrabúskap" (dry farming) fengið góða upp- skeru á svæðum, sem fá engu meiri úrkomu. 1 sum- um sveitum Spánar mætti auka uppskeruna afskap- lega, með því að útvíkka áveitukerfið. Eftirfarandi tölur sýna, hversu mikill munur er á uppskerumagni áveitusvæða og annara áveitulausra í sama héraðinu. Tölurnar eru frá 1932 pr. hektar í 100 kg. Cadix Granada Almeria Sevilla Hveiti áveita 19 28,5 15 30 áveitulaust 6,75 9,4 3,1 16 mais áveita 22 20,9 17 33 áveitulaust 6 10,8 4,75 9 Af þessu sést: Áveitan tvöfaldar og stundum allt að fimmfaldar uppskeruna.* Vatni mætti veita á helmingi stærra svæði. Meðaluppskeran er líka lægri en í öðrum löndum Evrópu. Á síðustu áratugum hefur hún þó smá- hækkað. Orsök þess, að landbúnaðurinn er svo skammt á veg kominn, er sú, að víð flæmi eru í höndum að- gerðalausra aðalsmanna, en jarðarskikar bænda eru *) í Valencia 14-faldaðist kartöfluuppskeran við áveitu. 100

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.