Réttur


Réttur - 01.06.1936, Blaðsíða 22

Réttur - 01.06.1936, Blaðsíða 22
uxaeyki dregur. Sigð er notuð við uppskeruna. Nokkrar sláttuvélar sá ég á ökrunum, en helzt minntu þær á vélar, sem tíðkuðust í Bandaríkjunum á sjötta tugi 19. aldar“. Nýtízku landbúnaður er því sjaldgæf sjón á Spáni. Þar sem auðmagn vantar svo mjög, er sú leið auðförnust fyrir óðalsherrana, klerkana og klaustrin að heimta leiguna greidda og kvaðirnar uppfylltar, jafnframf því að afurðum er haldið í okurverði inn- anlands. Enda þótt Spánn sé landbúnaðarland og fram- leiðslumöguleikarnir aðeins að litlu leyti notfærðir, er lagður hár tollur á allar innfluttar nauðsynja- vörur. Tollurinn nam árið 1932 í prósentum af verði vörunnar innanlands sem hér segir:* Hveiti bygg hafrar baunir mais 111 59 60 36 60 hrís kjöt sykur kartöflur saltfiskur 72 50 167 25 125 Síðan hefir haftastefnan unnið á með nýjum inn- flutningstakmörkunum. Haftastefnan hafði þann árangur á Spáni, að þrátt fyrir verðfallið á heimsmarkaðinum, hélzt verðið uppi innanlands. Heildsöluvísitala** (1913 = 100) : 1929 1930 1931 1932 Lífsnauðsynjar 180 178 180 181 Iðnaciarvörur 165 168 168 164 Gróðinn af þessari ástæðulausu verðhækkun land- búnaðarafurða lendir í pyngju gósseigenda. Smá- bændur hafa sáralítið til þess að selja. Þeir hrósa *) P. Grau: Weltwirtschaftliches Archiv, 1935. **) Anuario, s. 606. 102

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.