Réttur


Réttur - 01.06.1936, Page 23

Réttur - 01.06.1936, Page 23
happi ef þeir eiga einhverja ögn handa heimilinu, þegar þeir eru búnir að ljúka skuldum sínum og kvöðum. Dýrtíðin kemur neytendunum í koll; sérstaklega iðnaðarverkamönnum og smáborgurum. Enda er raunin sú, að dýrra lífsnauðsynja er lítið neytt. Fá- tækara fólk borðar næstum aldrei kjöt. Á Suður- Spáni eru hinir fegurstu appelsínugarðar. Þar vaxa á ári hverju 10—12 milj. vætta af appelsínum. Þar af eru 8—10 milj. fluttar út. Það er sjaldan að bændur eða verkamenn á Mið- eða Norður-Spáni bragða appelsínur. Þessi dýrtíðarstefna í landbúnaðarmálum hindrar mjög alla framleiðsluaukningu á landbúnaðarvör- um. Verndartollarnir og önnur haftameðöl halda verðinu því aðeins uppi, að framleiðslan innanlands fari ekki fram úr neyzlunni. Þeir sem græða á háa •verðinu, sjá þessvegna hag sinn í því, að hindra þróun búnaðarframleiðslunnar. Enda eru framfarirnar í þeim greinum sáralitlar; framleiðsluaukningin helzt varla í hendur við fólks- fjölgunina. Vegna markaðsþrengslanna verður öll fi'amleiðsluaukning að offramleiðslu, leiðir til verð- falls og þá fer jarðarentu gósseigenda að verða hætt. Þess vegna berjast þeir með oddi og egg gegn nýjum áveitum, aukningu framleiðslunnar og öllum kjarabótum bænda. Aðeins sannkölluð búnaðarbylt- ing, sem kippir öllu þessu rotna gamaldags búnað- arlagi upp með rótum, getur rétt hag bændanna við. Iðnaðurinn á í höggi við leifar lénsvaldsins í bún- aðarháttum, sem eru veruleg hindrun fyrir vexti hans. Kaupgeta alls þorra bænda getur varla verið minni, og hið háa verð landbúnaðarafurða takmarkar mjög kaupgetu verkamanna og smáborgara í bæjum. En okrararnir og yfir höfuð ráðandi stéttir fá þörfum 103

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.