Réttur


Réttur - 01.06.1936, Page 24

Réttur - 01.06.1936, Page 24
sínum fullnægt frá útlöndum. Eftirtaldar ástæður skapa þessa hringavitleysu: a) Spánski iðnaðurinn er miklu skemmra á veg kominn en iðnaður nágrannalandanna. b) Þrátt fyrir það er um ofgetu (Uberkapazitet) að ræða í ýmsum greinum, vegna markaðsþrengsla. c) Vegna slæmrar vélanýtingar og hins háa verð- lags á búnaðarafurðum er framleiðslukostnaðurinn svo mikill, að iðnaðurinn er ekki samkeppnisfær á erlendum markaði. d) Til þess að þvinga fram gróða undir þessum kringumstæðum heimtar iðnaðurinn verndartolla til þess að halda uppi innanlandsverðinu. Móttökugeta innanlandsmarkaðsins minnkar við þetta enn meir. Út úr þessari hringavitleysu kemst spánski iðnað- urinn aldrei nema með byltingu. Þessi atriði skýrast nokkuð með eftirfarandi töl- um. Framleiðsla helztu iðnaðarvara árið 1929: Spánn Frakkl. ítalia Pólland. Rafmagn (millj. kw.) 2 433 14.319 9.815 3.023 Kol 1000 tonn 7.108 53.780 — 46.236 Járn — — 753 10.362 727 706 Stál — — 1.003 9.716 2.122 1.377 Sement — — 1.820 5 787 3.497 1008 Bómullarsnældur (í þús.) 1.875 9.880 5.210 1 557 Gerfisilki (í tonnum) 900 16.780 32.340 2.730 Tölur þessar sýna, að iðnaðarþróun Spánar og Póllands er á líku stigi. Á ýmsum sviðum stendur ftalía framar Spáni, enda þótt iðnaðarskilyrði séu þar lakari. (ftalíu vantar bæði kol og járn). Hve iðnaðurinn er langt aftur úr, sézt þó bezt á því, hversu nýju iðngreinarnar, bíla-, véla-, gerfi- silki- og efnaiðnaður eru skammt á veg komnar. Við þetta bætist svo, að allverulegur hluti af nýj- asta iðnaðinum er í höndum erlendra auðhringa. Efnaframleiðslunni stjórnar þýzka félagið I. G. 104

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.