Réttur


Réttur - 01.06.1936, Blaðsíða 36

Réttur - 01.06.1936, Blaðsíða 36
stétt þessara kúguðu þjóðerna svikið málstaðinn og notað spánska ríkisvaldið gegn verkamönnum. Nýjungin í núverandi byltingu. Allt fram að bardögunum í Asturiu virtist bylt- ingaraldan sem hófst 1930 ætla að verða jafn árang- urslaus og allar, sem á undan voru gengnar. Og í rauninni hefði gósseigendastéttinni, með hjálp kirkj- unnar og fasistiskra lýðæsinga Gil Robles, tekist að hindra hina byltingarlegu jarðaskiftingu, enda þótt hún yrði að fórna konungdómnum. Kvaðirnar, sem tíðkuðust víða, voru að vísu afnumdar á pappírnum en lítið var hróflað við sjálfrl skiftingu jarðanna. Eins og í öðrum borgaralegum ríkjum var aðferð- in til þess að svíkjast um þessar aðgerðir sú, að í stað byltingarlegrar skiftingar, var sett ný búnaðar- löggjöf. „Búnaðarlöggjöfin verndar oss gegn þeirri hættu, sem steðjar að því þjóðfélagi, sem vér höfum hag af að viðhalda", sagði þáverandi forsætisráðherra, Zamora, þegar löggjöfin var lögð fram. Með brauki og bramli var stofnsett heilmikið skrifstofubákn til þess að framkvæma búnaðarlög- gjöfina, eða með öðrum orðum, hindra jarðaskift- inguna. Með varkárni mikilli og umhyggjusemi var nú vandlega rannsakað, hvort lögin giltu um við- komandi gósseiganda, hvort þeir, sem jarðarinnar kröfðust, höfðu rétt til þess, og hvort þeir væru þess um komnir að reka búskap. Bændurnir létu sefast af orðavaðlinum, sem lofsamaði búnaðarlöggjöfina og seinlætið á framkvæmdinni þreytti þá og sundr- aði samtökunum. Skaðabæturnar, sem stórbændurn- ir fengu vegna eignarnáms á einhverju af jörðum þeirra, voru svo háar, að byrðarnar, sem lentu á þeim bændum, sem land fengu, urðu óbærilegar. Víða höfðu bændur tekið sjálfir stórjarðirnar. Þetta eignarnám var löggilt um tveggja ára skeið, en 116

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.