Réttur


Réttur - 01.06.1936, Page 41

Réttur - 01.06.1936, Page 41
spönsku byltingunni, þá er án efa fjölmargt bylting- unni í hag, sem hlýtur að leiða til sigurs hennar, sé hyggilega og rétt að farið. H. E. þýddi. VÍÖSJÁ. Baráttan um Spán. Úrslitabaráttan er hafin milli lýðræðis og fas- isma. Ef til vill er borgarastyrjöldin á Spáni sjálf úrslitaorustan, sem sker úr um það, hvort þessara tveggja afla sigra muni í Evrópu. Spánski fasisminn, spánska afturhaldið var engan veginn gersigrað með úrslitum kosninganna 16. fe- brúar. Kommúnistarnir bentu á það án afláts, að öryggi lýðveldisins væri ekki tryggt, fyrr en búið væri að uppræta allan félagsskap fasista, svipta þá öllum skilyrðum til pólitískrar starfsemi, reka þá úr öllum trúnaðarstöðum ríkisins. En þetta var vanrækt. Jafnvel í sumum ábyrgðarmestu stöðum innan hers- ins sátu aðalleiðtogar fasismans eftir sem áður. Þeir höfðu svarið lýðveldinu hollustueiða, og í skjóli þeirra brugguðu þeir lýðveldinu fjörráð. Þessir land- ráðamenn í trúnaðarstöðunum undirbjuggu vopnaða uppreisn gegn löglega skipaðri stjórn ríkisins, sem hefir bak við sig mikinn meiri hluta þjóðarinnar, þeir gerðu samsæri við erlend fasistaríki gegn sinni eigin þjóð. Þessi uppreisn fasista og íhaldsmanna á Spáni hefir verið skipulögð og vandlega undirbúin um nokkurra mánaða skeið, eða allt síðan þjoðfylkingin vann sinn glæsilega kosningasigur í febrúar. Fylk- ing afturhaldsins, landaðall og kaþólsk kirkja, fas- istar og íhaldsmenn hafa á alla lund reynt að grafa grunninn undan stjórninni og sundra þjóðfylking- unni með hvers konar spellistarfi, fjársmyglun til útlanda, manndrápum og ofbeidisverkum. Þetta 121

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.