Réttur


Réttur - 01.06.1936, Blaðsíða 43

Réttur - 01.06.1936, Blaðsíða 43
óaldarsveitir uppreisnarmanna, allra þjóða kvikindi, fremja þau hryðjuverk, sem framin eru í þessari borgarastyrjöld, með því að brenna þorp, myrða konur og börn og svo framvegis, í rökréttu fram- haldi af þeim hermdarverkum, sem þessi sami óald- arlýður framdi í Astúríu eftir októberbardagana 1934. Sannleikurinn er sá, að hér er ekki fyrst og fremst um að ræða baráttu milli kommúnisma og fasisma, heldur milli fasisma og lýðræðis, baráttu, þar sem kommúnistar standa að vísu fremstir í flokki til varnar lýðræðisréttindum þjóðarinnar. Þessi blóðuga uppreisn er framin gegn yfirlýstum þjóðarvilja og í þeim tilgangi einum að endurskapa kapítalistum og stórjarðeigendum þeirra fyrri arð- ránsaðstöðu, að endurreisa afturhaldsvald kaþólsku kirkjunnar og lögleiða á ný alla þá þjóðarkúgun, sem fólkið hafði brotið af sér með atkvæðagreiðsl- unni í febrúar. Þeir hafa tvímælalaust á móti sér 90% þjóðarinnar. Að uppreisnin gat samt sem áður orðið jafn-háskaleg og raun ber vitni um, á sér alveg sérstakar orsakir. Aðalorsökin er vafalaust stuðn- ingur, sem uppreisnarmenn hafa notið af hálfu erlendra fasistaríkja. í öðru lagi tókst þeim þegar í byrjun að ná á sitt vald nokkrum af þýðingarmestu borgunum og því nær öllum vopnabirgðum lands- ins, auk þess sem þeir hafa miklu meira af lærðum herforingjum en stjórnarherinn. Einungis fyrir hina dæmafáu hugprýði hersveita hinna spánsku verka- manna, bænda og annarra alþýðumanna tókst að hrinda hinni vel undirbúnu fasistaliðsárás. Þessar illa útbúnu hersveitir, sem oft og tíðum börðust við alvopnaðan uppreisnarherinn svo. að segja með ber- um hnúunum og neituðu að taka við hermannakaupi sínu, svo að stjórnin gæti varið því til vopnakaupa — þessir spánsku öreigar hafa sýnt af sér svo frá- bæran eldmóð og fórnfýsi, að sagan mun um allan aldur geyma minningu þeirra. Orð forseta spánska 123

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.