Réttur


Réttur - 01.06.1936, Síða 44

Réttur - 01.06.1936, Síða 44
lýðveldisins, Azana, er hann sagði við blaðamann- inn Ulrich, bera þessu vitni: ,,Ég hefi aldrei borið traust til herforingjastéttarinnar og ekki heldur til hinna lærðu manna eða stjórnmálamannanna. Það er alþýðan ein, sem ég hefi alltaf treyst og treysti enn. Evrópa má vera þess fullviss, að með stuðningi þessarar alþýðu mun okkur einnig að þessu sinni takast að sigra“. Að stuðla að þessum sigri spánsku alþýðunnar er heilagasta skylda allra lýðræðissinna og frjálslyndra manna um víða veröld. Allt „hlutleysi“ í þessu efni er óbeinn stuðningur við fasistana. Þess vegna hlýtur hlutleysistillaga frönsku stjórnarinnar að vekja von- brigði allra lýðræðissinna, þar sem hún fer fram á það að banna alla vopnasölu til hins löglega stofnaða spánska lýðveldis, sem berst fyrir tilveru sinni gegn óaldarflokki, er stendur í þjónustu erlendra her- velda. Hún fer í rauninni fram á refsiaðgerðir af hálfu lýðræðisríkjanna gegn lögmætu lýðveldi, sem á í höggi við landráðamenn og erlenda bófaflokka. Úrslit borgarastyrjaldarinnar á Spáni hafa alþjóð- lega þýðingu. Ef fasisminn sigraði þar í landi, þá væri það um leið raunverulegur sigur fyrir fasismann um allan heim. Skilyrðin væru sköpuð fyrir allsherj- ar sókn fasismans, og lýðræðislönd Evrópu ættu í vök að verjast. Sérstaklega myndu ítök þau, sem Þýzkaland og Ítalía fengju á Spáni, auka stórum hernaðarstyrk þessara fasistaríkja og gera þeim fært að hefja árásarstríð á Frakkland og hleypa þannig heiminum í bál og brand. Menning Evrópu er í voða, ef fasisminn sigrar á Spáni. B. Fr. 124

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.