Réttur - 01.10.1972, Blaðsíða 3
SIGURJÓN PÉTURSSON:
AÐ STJORNA
EÐA VERA
STJÓRNAÐ
J ðití HC.
Þegar Alþýðusambandsþing kemur Æafnim
á þessu hausti, í fyrsta sinn eftir fjögurra ára
starfstíma miðstjórnar, blasa við mjög breytt
viðhorf, frá því síðasta þing var háð.
Á þessu tímabili hefur verkalýðshreyfingin
náð umtalsverðum árangri í réttindabaráttu
sinni. Þar má t.d. nefna; styttingu vinnuvik-
unnar, lengingu orlofs, leiðréttingu á launa-
kjörum, sem er raunverulegri nú en oft áður,
og það sem mest er um vert, útrýmingu at-
vinnuleysis.
Varanleiki þessara kjarabóta virðist einnig
ætla að geta orðið meiri en oftast áður. Það,
sem sérstaklega bendir til þess eru þær skipu-
legu aðgerðir, sem nú eru gerðar til að treysta
undirstöðu íslenzks atvinnulífs.
Þar ber að sjálfsögðu hæst útfærsla fisk-
veiðilögsögunnar í 50 rnílur, sem mun fram-
ar öllu öðru tryggja okkur áframhaldandi
nýtingu sjávarafla sem undirstöðuatvinnu-
grein og sem líklegust er til að tryggja at-
195