Réttur - 01.10.1972, Qupperneq 5
róma álit allra að miklu hafi verið fórnað
í varnarbaráttu.
Að vísu verður að taka mið af því að á
þessum tíma hefur verkalýðshreyfingin oft-
ast glímt við óvinveitt ríkisvald og þurft að
eyða miklum kröftum í það eitt að halda sín-
um hlut óskertum og jafnvel ekki tekizt það
stundum. Það hefur ekki verið venja ríkis-
stjórna að leita eftir samstöðu við verkalýðs-
hreyfingu um aðgerðir í efnahagsmálum.
Þvert á móti. Gengisfellingar og kaupbind-
ingar, afnám vísitölu eða skerðing hennar
hefur til þessa verið einhliða ákveðið af rík-
isvaldinu og verkalýðshreyfingin oftast orðið
að sætta sig við skertan hlut. Staðreynd er að
til þessa hefur allur almenningur látið stjórn-
ast, en ekki reynt að stjórna sjálfur.
Af þessum ástæðum dreg ég í efa að verka-
lýðshreyfingin sé tilbúin að axla þá ábyrgð
að velja beztu leiðir í efnahagsmálum þegar
til hennar verður leitað í þeim efnum.
Ég dreg það í efa vegna þess að verka-
lýðshreyfingin, sem slík, hefur ekki enn mót-
að sér neina heildarstefnu í þjóðfélagsmálum.
Þarna verður að verða breyting á.
Verkalýðshreyfingin á að setja fram kröfur
um aðgerðir, sem miða að því að auka launa-
jöfnuð í þjóðfélaginu, hvort heldur eru kröf-
ur til samningsaðila, eða til ríkisvaldsins. I
þeim efnum eru tveir þættir aðkallandi nú.
Sá fyrri er vísitalan.
VÍSITALAN
Eins og vísitala er reiknuð nú, er hún einn
helzti hemillinn á launajöfnuði.
Hækkun á launum Iáglaunafólks, sem
undantekningarlítið vinnur við framleiðslu-
atvinnuvegina, er vegna gagnverkana vísi-
tölunnar á örskömmum tíma búin að tryggja
hálaunafólki tvisvar eða þrisvar sinnum
meiri kauphækkun en láglaunafólkið fékk.
Eins og vísitölureikningi er háttað nú, þá
mælir vísitalan alla neyzlu meðalfjölskyldu,
og öll atriði neyzlunnar vega jafn þungt á
vísitöluna. Vísitalan reiknast í hlutfalli af
launum og bætist því með fleiri krónum á
há laun en lág, þannig verða kauphækkanir
sem vísitalan bætir til tekjubóta fyrir há-
launafólk.
Það að vísitalan skuli vega alla þætti
meðalneyzlunnar jafn þungt er höfuðgalli
hennar.
Að benzín skuli vega jafn þungt í hlutfalli
við neyzlu og mjólk er í sjálf sér hróplegt
misræmi. Að brennivín skuli á sama hátt
vega jafn þungt og neyzlufiskur, er fráleitt.
Fyrir þá fjölskyldu sem notar laun sín
til brýnustu lífsframfærslu er vísitalan því
ranglát, af því að hún vegur ekkert þyngra
nauðsynlegustu neyzluvörur heldur en miður
nauðsynlegar vörur.
I sjálfu sér er vísitölukerfið svo fráleitt
að uppbyggingu, að það verður að vera krafa
verkalýðshreyfingarinnar að breyta því.
Að halda dauðahaldi í svona vísitölukerfi
og telja röskun þess til höfuðglæpa, þjónar
örugglega ekki hagsmunum verkafólks. Það
verður að vera krafa verkalýðshreyfingarinn-
ar að vísitalan tryggi betur en hún gerir nú,
hag þeirra sem aðeins hafa laun fyrir brýn-
ustu lífsnauðsynjum og það verður einnig að
vera krafa verkalýðshreyfingarinnar að eng-
inn fái verðhækkanir margfaldlega bættar
því að það eykur aðeins á ójöfnuð í þjóð-
félaginu.
Þess vegna á verkalýðshreyfingin að beita
sér fyrir breytingu á vísitölukerfinu.
SAMNEYZLA
Annar er sá þáttur, sem verkalýðshreyf-
ingin þarf að taka upp öfluga baráttu fyrir.
Það er stöðugt vaxandi samneyzla í þjóðfé-
laginu. A undanförnum árum hefur einka-
neyzla aukizt stöðugt. Þá á ég ekki eingöngu
197