Réttur - 01.10.1972, Síða 47
Einar Olgeirsson
Þorsteinn Erlingsson
og þingið í Basel
I.
FYRIR 60 ÁRUM
Veturinn 1912 var að ganga i garð.
Suður í Evrópu er Balkanstríðið að byrja. Tyrk-
land og bandalag smárikjanna á Balkan höfðu
byrjað að berjast í október. Á bak við þau standa
Stórveldi Evrópu: Rússland keisarans og Frakk-
land bak við bandalagið, Þýzkaland keisarans bak
við Tyrkland, hinn „sjúka mann Evrópu," stórveldið,
sem einu sinni var. Þetta eru „æfingar" stórveld-
anna, undanfari heimsstríðsins, fyrsta ógnarblóð-
baðsins, sem auðstéttir Evrópu leiða yfir mann-
kynið. — En sósíalístar Evrópu hyggjast hindra
auðvald Evrópu í að fremja þennan glæp. Styrkur
þeirra er vaxandi. Hinn sósíalíski verkalýðsflokkur
Þýzkalands, Sósíaldemókrataflokkurinn, undir for-
ustu August Bebels, verður í þingkosningunum
1912 stærsti flokkur Þýzkalands með 29% þjóðar-
innar bak við sig. Og meira að segja i sjálfu
harðstjórnarríki rússneska zarsins sitja 6 bolsé-
vikkar á þingi eftir all sigursælar kosningar. II.
Internationale, hið sósíalistíska Alþjóðasamband
verkalýðsins, sker upp herör hjá verklýðssambönd-
um Evrópu til baráttu gegn striðinu. Það boðar til
aukaþings alþjóðasambandsins I Basel I Sviss 24.
nóvember 1912.
Norður á íslandi fylgist fyrst og fremst einn
maður af athygli og brennandi áhuga með aðgerð-
um þessum. Reykjavík er nýorðin tólf þúsund
manna borg, — hún er i kvosinni kringum Tjörnina
og sést af Skólavörðuhæðinni, er menn koma
gangandi að sunnan. Úr litlu, hvítu húsi í Þing-
holtunum horfir Þorsteinn Erlingsson sem úr Hlið-
skjálf á þennan heim, sem alþjóðleg verkalýðs-
hreyfing er að reyna að vernda frá voða og um-
skapa i annan betri. Hann vill gera íslenzkan verka-
lýð hlutgengan í því stórvirki. En það gengur hægt.
— Islenzkur verkalýður á sér ekkert blað, en nokk-
ur samtök, sem af veikum mætti heyja hagsmuna-
baráttu, bjóða stundum fram bæjarstjórnarlista,*) en
hafa enn ekki skapað sér flokk.
Það eru liðin sex ár, síðan Þorsteinn Erlingsson
*) Verkamannafélagið Dagsbrún hafði staðið að
bæjarstjórnarlista í janúar 1910 og komið Pétri G.
Guðmundssyni I bæjarstjórn Reykjavíkur og boðið
sjálft fram lista í janúar 1912 og komið Þorvarði
Þorvarðssyni sem fulltrúa sínum í bæjarstjórnina.
239
L